Fréttir

Tvö skemmtiferðaskip um helgina
Mánudagur 17. ágúst 2026 kl. 10:40

Tvö skemmtiferðaskip um helgina

Tvö skemmtiferðaskip höfðu viðkomu í Keflavíkurhöfn um helgina og tvö til viðbótar eru bókuð síðar í haust.

Ocean Victory hafði viðkomu á laugardaginn og fór sama dag. Þá kom Expedition til hafnar í gær og er með skráða brottför síðdegis í dag.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Expedition er væntanlegt aftur 13 september og mun stoppa í sólarhring. Þann 16. september kemur svo MV Discoverer í stutt stopp. Það skip var hér á ferð síðast þann 6. ágúst sl.

Koma þessara skipa er góð upplyfting fyrir þjónustu í Reykjanesbæ þar sem farþegar fara í land og kaupa ýmsa þjónustu.

Myndin er af Expedition sem fer frá Keflavík síðdegis í dag. VF/hilmarbragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn