Aðgerðir gegn gegnumakstri og heildstæð úttekt á göngustígum í Reykjanesbæ
Umhverfis- og framkvæmdaráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 14. ágúst síðastliðinn víðtækar aðgerðir og áform til að efla umferðaröryggi í Ásahverfi, auk þess sem lagt var til að gerð verði heildstæð úttekt á allt göngustígakerfi sveitarfélagsins.
Bráðabirgðaaðgerðir og framtíðaráform í Ásahverfi
Ráðið fylgdi eftir fyrri ákvörðun um lokun Bergáss að norðanverðu, sem ráðist var í í kjölfar undirskriftalista íbúa. Vísbendingar eru um að jákvæð breyting hafi orðið á umferð um hverfið og gegnumakstur minnkað.
Þá hefur breyting er varðar bönnuð vinstri beygju af Grænásvegi inn á Njarðarbraut þegar tekið gildi, og á næstu dögum verður ráðist í þrengingar á norðvesturhorni gatnamótanna til að vernda gangandi vegfarendur. Ráðið áréttar að þessar aðgerðir séu bráðabirgðalausnir á meðan unnið er að varanlegri hönnun.
Til að bæta aðgengi til framtíðar ítrekar ráðið mikilvægi eftirfarandi framkvæmda:
-
Bráðabirgðahringtorg á gatnamótum Bergáss og Njarðarbrautar.
-
Lagning göngustíga frá Fitjum og Ásahverfi er tengja Fitjabakka og Fitjabraut við stígakerfið.
-
Undirgöng undir Grænásbrekku fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
-
Flýting á framkvæmdum við svokallaðan ofanbyggðaveg (frá Vallarási að Grænásvegi) til að draga frekar úr gegnumumferð.
Allt göngustígakerfi bæjarins tekið til skoðunar
Sami fundur fjallaði um tillögu Einars Þórs Guðmundssonar, fulltrúa í ráðinu, um að sviðsstjóra verði falið að gera heildstæða úttekt á öllu gangstígakerfi Reykjanesbæjar. Markmiðið er að greina ástand stíga, öryggi, aðgengi og tengingar við skóla, almenningssamgöngur og á milli hverfa.
Í greinargerð tillögunnar er bent á nokkra staði þar sem úrbóta er þörf, meðal annars óupplýsta stíga við sjóinn í Innri-Njarðvík, stíg bak við Leikskólann Skógarás sem staðnað hefur eftir stækkun, og frágang í Brekadal. Niðurstöður úttektarinnar munu nýtast sem grunnur að forgangsröðun viðhalds og framtíðaruppbyggingar í sveitarfélaginu.







