Landsbankinn

Íþróttir

Guðmundur Leo sýndi glæsilega takta á Evrópumótinu í París
Þriðjudagur 18. ágúst 2026 kl. 17:39

Guðmundur Leo sýndi glæsilega takta á Evrópumótinu í París

Guðmundur Leo Rafnsson átti frábæru gengi að fagna á nýafstaðna Evrópumeistaramótinu í París, þar sem hann keppti fyrir hönd Íslands í 50m, 100m og 200m baksundi.

Mótið var sérlega árangursríkt hjá Guðmundi þar sem hann bætti sinn besta tíma í bæði 50m og 100m baksundi. Hann var sömuleiðis hársbreidd frá því að bæta sinn besta árangur í 200m baksundinu, en þar kom hann í mark aðeins 9/100 úr sekúndu frá sínum besta tíma.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Guðmundur kórónaði síðan frábært mót með því að setja nýtt Íslandsmet ásamt boðsundssveit Íslands í 4 x 100m fjórsundi, en hann reif af stað glæsilegan baksundssprett fyrir sveitina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn