Aðsent

Skref í rétta átt fyrir börn og fjölskyldur
Miðvikudagur 26. ágúst 2026 kl. 06:26

Skref í rétta átt fyrir börn og fjölskyldur

Mikilvægt skref hefur verið stigið í þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í Reykjanesbæ. Bæjarráð hefur samþykkt rúmlega 8,3 milljóna króna framlag til tímabundinnar fjölgunar plássa í skammtímavistun og þar með tryggt að hægt sé að halda áfram þeirri vinnu sem hófst fyrr á árinu.

Ákvörðunin felur í sér aukna þjónustu við börn sem bíða eftir skammtímavistun og þau sem þegar nýta úrræðið en þurfa meiri þjónustu. Um leið er þetta mikilvægur stuðningur við fjölskyldur sem margar hverjar hafa búið við mikið og langvarandi álag.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Um 20 börn eru á biðlista eftir skammtímavistun og um helmingur þeirra er frá Reykjanesbæ. Það sýnir með skýrum hætti hversu brýn þörfin er og hversu mikilvægt er að bregðast við henni.

Vinna sem hófst fyrr á árinu

Að baki ákvörðuninni liggur vinna sem hófst fyrr á árinu við að finna leiðir til að efla skammtímavistun fatlaðra barna.

Í mars var kallað eftir tillögum að aukinni þjónustu og í maí samþykkti bæjarráð að bæta við 25% stöðugildi í Heiðarholti. Sú viðbót gerir kleift að fjölga þjónustudögum og taka fleiri börn inn í þjónustuna. Bæjarstjóra var jafnframt falið að vinna áfram með aðrar tillögur sem fram komu.

Sú ákvörðun sem nú hefur verið tekin er því næsta skref í þeirri vinnu.

Reykjanesbær og Suðurnesjabær hafa um árabil átt samstarf um rekstur skammtímavistunarinnar í Heiðarholti og sveitarfélagið Vogar kemur nú einnig að þeirri tímabundnu lausn sem unnið er að.

Lausnin felur í sér að húsnæði Suðurnesjabæjar í Skerjaborg verði nýtt tímabundið sem hluti af starfsemi Heiðarholts. Þar verður hægt að þjónusta börn með miklar umönnunarþarfir og um leið skapa svigrúm til að fjölga skammtímadvölum í Heiðarholti.

Suðurnesjabær leggur til húsnæðið og ber kostnað vegna framkvæmda við það. Rekstrarkostnaður skiptist milli samstarfssveitarfélaganna eftir íbúafjölda, líkt og í öðrum sameiginlegum þjónustuúrræðum á Suðurnesjum. Hlutdeild Reykjanesbæjar á árinu 2026 er 8.325.005 krónur.

Samstarfið sýnir vel hversu miklu sveitarfélögin á Suðurnesjum geta áorkað þegar þau leita lausna saman og nýta sameiginlega þekkingu, starfsfólk og innviði í þágu íbúa svæðisins.


Tímabundin lausn og skýr framtíðarsýn

Þótt þessi ákvörðun sé mikilvæg er hún ekki endapunktur. Hún er tímabundið svar við brýnni þörf.

Samhliða henni er unnið að þarfagreiningu sem á að leggja grunn að framtíðarsýn og stefnumörkun Reykjanesbæjar í þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.

Við þurfum að geta gert tvennt í einu: brugðist við þörfum þeirra fjölskyldna sem bíða eftir þjónustu í dag og um leið byggt upp heildstæða þjónustu til framtíðar.

Hversu mikil er þörfin? Hvernig er hún að þróast? Hvaða úrræði vantar? Hvar getum við gert betur? Og hvernig tryggjum við að börn og fjölskyldur fái rétta þjónustu á réttum tíma?

Þessar spurningar þurfa að leiða næstu skref.

Sameiginlegt verkefni

Í velferðarráði finn ég fyrir skýrri samstöðu um það meginmarkmið að gera betur. Þar situr fólk með ólíkan bakgrunn og ólíkar stjórnmálaskoðanir en sameiginlegan vilja til að bæta þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar.

Á bak við verkefnið stendur jafnframt starfsfólk sem hefur greint stöðuna, unnið tillögur að úrbótum og leitað lausna í samstarfi við nágrannasveitarfélögin. Árangur af þessu tagi verður ekki til fyrir tilstilli eins einstaklings. Hann verður til þegar fólk leggur saman krafta sína og vinnur að sameiginlegu markmiði.

Við sem sitjum í velferðarráði vorum kjörin af fólki til að vinna fyrir fólk. Verkefni okkar næstu fjögur árin er að hlusta, greina þarfir, setja skýr markmið og fylgja ákvörðunum eftir.

Nú hefur mikilvægt skref verið stigið. Fjármagnið hefur verið samþykkt, þjónustan verður aukin og vinna við framtíðarskipulag er hafin. Okkar sameiginlega ábyrgð er að tryggja að þeirri vinnu verði fylgt eftir af festu og virðingu með þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra ávallt í forgrunni.

Ólöf Steinunn Lárusdóttir
Höfundur er formaður velferðarráðs Reykjanesbæjar 

Bílakjarninn
Bílakjarninn