Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Ljósanæturblað Víkurfrétta í vikulokin
Þriðjudagur 25. ágúst 2026 kl. 23:17

Ljósanæturblað Víkurfrétta í vikulokin

Víkurfréttir gefa út veglegt Ljósanæturblað í lok vikunnar. Blaðið kemur út á laugardaginn. Ljósanótt er dagana 2. til 6. september. Víkurféttir verða hins vegar tímanlega með blaðið fyrir hátíðina.

Í Ljósanæturblaðinu verður dagskrá hátíðarinnar birt og vegleg umfjöllun tengd hátíðinni. Nú stendur yfir vinna við blaðið á ritstjórn Víkurfrétta.

Auglýsendur eru hvattir til að vera í sambandi við auglýsingadeild á póstfangið [email protected].

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Þið sem viljið koma að efni eða ábendingum um áhugavert efni í Ljósanæturblaðið getið sent okkur tölvupóst á [email protected].

Við hvetjum einnig til þess að efni og auglýsingar berist tímanlega þar sem blaðið er stórt og myndarlegt og tekur tíma í vinnslu en blaðið fer til prentunar á föstudag og verður dreift á alla okkar dreifingarstaði á laugardagsmorgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn