Fréttir

Enn nóg um að vera á síðasta degi Ljósanætur - Myndasafn frá laugardeginum
Sunnudagur 6. september 2026 kl. 13:43

Enn nóg um að vera á síðasta degi Ljósanætur - Myndasafn frá laugardeginum

Ljósanótt 2026 lýkur í dag, sunnudaginn 6. september, eftir viðburðaríka hátíðardaga í Reykjanesbæ. Mikill mannfjöldi lagði leið sína á hátíðina í gær þegar árgangagangan setti svip sinn á bæinn og stórtónleikar ásamt flugeldasýningu fylltu miðbæinn af lífi í blíðskaparveðri sem skapaði ógleymanlega stemningu.

Neðst í fréttinni er myndasafn frá laugardeginum á Ljósanótt.

Þótt stærsti dagur hátíðarinnar sé að baki er Ljósanótt ekki alveg búin. Bjart og fallegt veður tekur á móti gestum á lokadeginum og fjölbreytt dagskrá er í boði víða um Reykjanesbæ.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Meðal dagskrárliða dagsins er söguganga um gamla bæinn í Keflavík. Tónleikar verða í Kirkjuvogskirkju í Höfnum og kvölddagskrá verður að venju í Keflavíkurkirkju. Þá fara minningartónleikarnir Himinn og jörð um Gunnar Þórðarson fram í Hljómahöll, en það er einkar viðeigandi að á Ljósanótt gefist tækifæri til að minnast Gunnars og þess mikla tónlistararfs sem hann skilur eftir sig.

Sunnudagurinn er jafnframt góður dagur til að rölta um bæinn, heimsækja sýningar og njóta þess síðasta sem hátíðin hefur upp á að bjóða áður en flautað verður til loka.

Alla dagskrá dagsins má finna á vefnum ljosanott.is.

Í tilkynningu lögreglu um Ljósanótt segir að mikill mannfjöldi sótti viðburði Ljósanætur í gær, allt frá morgni til kvölds. Hátíðin náði hápunkti í gærkvöldi þegar stórtónleikarnir fóru fram og flugeldasýning. Eftir að formlegri dagskrá lauk í gærkvöldi voru mörg verkefni hjá lögreglu sem tengdust ölvun. Eftir nóttina eru fjórir sem gista fangageymslur, m.a. vegna líkamsárása og ölvunar. Enginn slasaðist alvarlega.

Lögreglu bárust að öðru leyti tilkynningar vegna óláta, ölvunar og eignaspjalla. Ölvun og ólæti ungmenna var nokkur.

Svipmyndir frá laugardegi á Ljósanótt 2026

Bílakjarninn
Bílakjarninn