Laugardagur 3. október 2026 kl. 03:25
Óska eftir kostnaðargögnum vegna vetraræfinga meistaraflokka
Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar tekur jákvætt í beiðni knattspyrnudeildar Reynis um aukinn stuðning vegna vetraræfinga meistaraflokka. Ráðið telur mikilvægt að íþróttafélögin í Suðurnesjabæ hafi fullnægjandi aðstöðu til æfinga yfir veturinn.
Áður en málið verður afgreitt frekar óskar ráðið eftir sundurliðuðum kostnaði og frekari gögnum frá báðum íþróttafélögum bæjarins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um aukinn fjárstuðning.