Leit hafin í Grindavík
Leit hófst í morgun að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar í sprungu við einbýlishúsið að Staðarhóp 29 í Grindavík. Lúðvík féll ofan í sprungu við húsið þegar hann var við vinnu þar í janúar 2024. Mikil leit fór fram næstu mánuði án árangurs.
Rústabjörgunarsveitarmaður og sérsveitarmaður fóru á tólfta tímanum í morgun ofan í sprunguna en á svæðinu eru menn frá lögreglu og sérsveit hennar ásamt björgunarsveitarmönnum og sérstökum sigmönnum.
Leitað verður í dag en ekki er vitað meira um hversu lengi. Aðstæður eru krefjandi og framkvæmd tekur mið af áhættumati sem hefur verið unnið í langan tíma af sérfræðingum.
Í tilkynningu á vef lögreglunnar segir að um sé að ræða sjónskoðun og leit með myndavél sem framkvæmd verður af sérhæfðum leitarmönnum sem munu síga niður í sprunguna. Aðstæður á vettvangi eru afar krefjandi og tekur öll framkvæmd mið af ítarlegu áhættumati sem unnið var í samstarfi innlendra og erlendra sérfræðinga. Vegna þessa er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður á vettvangi en ekki björgun. Áhersla er lögð á að tryggja öryggi þeirra sem að aðgerðinni koma.
Ekki verða veittar upplýsingar um leitaraðgerðina á meðan á henni stendur en upplýsingar verða sendar á fjölmiðla um leið og þær liggja fyrir og aðstandendur hafa verið upplýstir.






