Gjaldtaka á Reykjanesbraut í nýju innviðafélagi ríksins
Reykjanesbraut, Hvalfjarðargöng og Suðurlandsvegur gætu orðið hluti af nýju innviðafélagi ríkisins og þá til að hefja þar gjaldtöku. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram frumvarp um stofnun sérstaks innviðafélags í eigu ríkisins. Markmið félagsins er að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum, sérstaklega í jarðgangagerð, og flýta stórum og þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum með því að sækja fjármagn utan hefðbundinna fjárlaga.
Í greinargerð frumvarpsins eru þrjú stórverkefni nefnd sem fyrstu forgangsverkefni félagsins: Sundabraut (150 milljarðar), Fljótagöng (21,5ma) og Ölfusárbrú (19 ma).
- Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og fækka framlögum úr ríkissjóði.
Fjármögnun og veggjöld
Félaginu verður heimilt að innheimta veggjöld til að standa undir stofnkostnaði, rekstri og viðhaldi þeirra mannvirkja sem það tekur að sér. Reiknað er með að árlegar tekjur af veggjöldum á nýjum mannvirkjum gætu numið um 7,5 milljörðum króna, auk 9,8 milljarða af eldri mannvirkjum sem félagið gæti fengið til umsýslu.
Félagið mun starfa sem sjálfstætt hlutafélag og getur tekið lán á markaði, stofnað dótturfélög um einstök verkefni og boðið öðrum fjárfestum, svo sem lífeyrissjóðum, að koma að fjármögnun. Þrátt fyrir aðkomu einkaaðila skal ríkissjóður alltaf eiga ráðandi hlut í félaginu.






