Fjölsmiðjan á Suðurnesjum fagnar 15 ára afmæli: Yfir 400 nemar fengið nýtt tækifæri
Það eru merkur áfangi í sögu Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum í dag, 17. mars, en á þessum degi fyrir réttum fimmtán árum hófu fyrstu nemarnir störf hjá stofnuninni. Síðan þá hafa yfir 400 nemar af Suðurnesjum starfað hjá Fjölsmiðjunni og með því brotið á bak óvirkni og fundið nýjan kraft til framtíðar.
Þorvarður Guðmundsson, Þorri, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar til tæpra 12 ára, segir í færslu á samfélagsmiðli Fjölsmiðjunnar að mesti galdurinn að baki velgengni nemanna sé virknin sjálf. Að komast úr óvirkni yfir í virkni sé stórt skref sem flestir taki í mörgum smáum skrefum. Hjá Fjölsmiðjunni er einmitt lögð áhersla á trúna á litlu skrefin og að æðrast ekki þótt stundum sé langt á milli þeirra, svo lengi sem stefnan sé áfram.
Árangurinn leynir sér ekki, en á hverju ári fara á bilinu sjö til tíu nemar til vinnu á almennum vinnumarkaði. Að baki þeim tölum liggja margar ótrúlegar framfarasögur einstaklinga sem hafa öðlast von um það líf sem þá dreymir um með því að sanna sig á vinnustað. Fjölsmiðjan leggur mikið upp úr því að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur, sýna virðingu og hjálpa nemum að öðlast trú á sjálfa sig.
Þorri sendir jafnframt samstarfsfólki sínu, sem og íbúum á Suðurnesjum, þakkir í tilefni dagsins. Hann segir stuðning þeirra sem gefa varning í Kompuna, nytjamarkað Fjölsmiðjunnar, eða kaupa þjónustu af þeim, vera algjört lykilatriði í því að halda starfseminni á floti.
„Það þarf að vera pláss fyrir alla og það þarf að mæta fólki þar sem það er,“ segir Þorri og undirstrikar að með því að kveikja vilja og von geti allir gert mun meira en þeir hefðu nokkurn tímann trúað.






