Foreldrum boðið til samtals um skólastarf í Grindavík í dag
Bæjaryfirvöld í Grindavík bjóða foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri til opins samtals um framtíð skólastarfs í dag, þriðjudaginn 17. mars. Fundurinn fer fram í menningarhúsinu Kvikunni og hefst klukkan 17:00.
Meginmarkmið fundarins er að ræða fyrirhugaðan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík sem stefnt er að því að opna næsta haust. Gefst foreldrum þar kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, leggja fram spurningar og sýna áhuga á skráningu barna sinna í skólann. Bæjaryfirvöld leggja áherslu á mikilvægi þess að eiga gott samtal við íbúa um uppbygginguna og eru allir foreldrar velkomnir til þátttöku.






