Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - forskóli 2
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - forskóli 2

Fréttir

Niðurrif kísilversins í Helguvík hafið
Guðný Birna, forseti bæjarstjórnar, ræðst gegn fyrstu plötunni. VF/hilmarbragi
Þriðjudagur 17. mars 2026 kl. 11:37

Niðurrif kísilversins í Helguvík hafið

Tímamót urðu í Helguvík þegar Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, hóf formlega niðurrif á kísilverinu á dögunum. Samhliða því voru undirritaðir samningar á milli Reykjanesbæjar og Reykjanes Investment sem tryggja að bærinn eignast lóðina undir verksmiðjunni að nýju. Svæðið verður nú skipulagt upp á nýtt undir annan iðnað, en forsvarsmenn bæjarins segja ljóst að tíma kísilvera í Helguvík sé endanlega lokið.

Sigurgeir Jóhannsson hjá Reykjanes Investment staðfesti í samtali við Víkurfréttir að niðurrif verksmiðjunnar muni nú halda áfram af fullum krafti og munu byggingarnar hverfa af sjónarsviðinu á næstu vikum. Verkið hefst á verksmiðjubyggingum uppi á Hólmsbergi og færist síðan niður á neðra svæðið, en áætlað er að seglskálar á svæðinu standi áfram og verði endurbyggðir í hinu nýja skipulagi.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Það er fyrirtækið Berserkir, félag á vegum Íslenska gámafélagsins, sem sér um niðurrifið. Verkið er talið mikil áskorun sökum þess hve byggingarnar eru rammgerðar, en stálvirkið er víða allt að tveggja tommu þykkt og steyptir veggir tugir sentimetra. Þá gerir hæð bygginganna verkið einnig umfangsmikið, en stefnt er að því að hreinsa svæðið svo ný nýting geti hafist sem fyrst.

Guðný Birna tók að sér að hefja niðurrif kísilversins.

Frá undirritun samninga milli Reykjanesbæjar og Reykjanes Investment í Helguvík um lóð kísilversins, sem bærinn eignast. VF/hilmarbragi