Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Ungmenni í Grindavík teikna upp framtíðina á ungmennaþingi
Þriðjudagur 17. mars 2026 kl. 06:42

Ungmenni í Grindavík teikna upp framtíðina á ungmennaþingi

 Laugardaginn 21. mars verður haldið ungmennaþing í Grindavík, þar sem ungmenni, 13 ára og eldri, fá tækifæri til að hafa áhrif á endurreisn og framtíð Grindavíkur. 

 Snarteiknarinn Elín Elísabet Einarsdóttir mun teikna upp umræðurnar jafnóðum, sem skapar frábært sjónrænt yfirlit yfir vilja ungmennanna. Bryndís Gunnlaugsdóttir stýrir þinginu og Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, setur það með ávarpi kl. 11:30 á laugardaginn.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Viðburðurinn er ekki bara hefðbundinn fundur, heldur á líka að vera gaman. Boðið verður upp á veitingar frá Hérastubbi bakara og dagskránni lýkur svo með alvöru sundlaugapartýi í íþróttahúsinu. 

Í tilefni Alþjóðadags Downs heilkennis, sem er einmitt á laugardaginn, eru allir þátttakendur hvattir til að mæta í mislitum sokkum og fagna þannig  fjölbreytileikanum með táknrænum hætti. Nice guys hópurinn mun síðan stíga á svið á þinginu, en hópinn skipa fjórir eldfjörugir drengir með Downs heilkenni.