Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Bryndís Rún Baldursdóttir og Dóra Steinunn Jóhannsdóttir stýra kosningabaráttu Viðreisnar
Bryndís Rún og Dóra Steinunn.
Föstudagur 20. mars 2026 kl. 14:11

Bryndís Rún Baldursdóttir og Dóra Steinunn Jóhannsdóttir stýra kosningabaráttu Viðreisnar

Viðreisn í Reykjanesbæ hefur ráðið til sín Bryndísi Rún Baldursdóttur sem kosningastjóra framboðsins ásamt Dóru Steinunni Jóhannsdóttur. Bryndís Rún er með bakgrunn í stýringu markaðsmála og verkefnastjórnun úr fyrri störfum, auk þess að hafa setið í stjórn Ungra athafnakvenna á árunum 2023–2025.

„Ég hlakka til komandi verkefna og er í senn þakklát fyrir tækifærið að geta komið þar að málum fyrir framboðið. Ég er frá Sauðárkróki en flutti nýverið í Reykjanesbæ, þar sem ég bý með fjölskyldunni minni og sé ótal tækifæri sem sveitarfélagið hefur. Ég hef trú á því að ferskir vindar í bæjarpólitíkina skili sér í auknum árangri og skilvirkni sveitarfélagsins,“ er haft eftir Bryndísi í tilkynningu

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Ásamt Bryndísi Rún mun Dóra Steinunn Jóhannsdóttir koma að verkefnastjórn í kringum framboðið. Dóra Steinunn hefur reynslu af verkefnastýringu í stjórnsýslu úr fyrri störfum.

„Við í Viðreisn erum virkilega ánægð með komandi samstarf við þær Bryndísi og Dóru, þær koma með fersk augu og nýja sýn á samfélagið. Reynslubakgrunnur Bryndísar í markaðsmálum og stjórnsýslureynsla Dóru skapa sterka heild sem gerir okkur kleift að horfa bæði gagnrýnið á stöðuna í dag og markvisst til framtíðar,“ segir Arnar Páll Guðmundsson, oddviti Viðreisnar, í tilkynningunni.

Teymið mun taka til starfa strax enda í mörg horn að líta á næstu vikum. Viðreisn mun opna kosningaskrifstofu við Tjarnargötu 7 í byrjun apríl, þar sem frambjóðendur munu kynna stefnu sína og gefst fólki tækifæri til að kynna sér hana og kynnast frambjóðendum. Hægt er að hafa samband við [email protected] fyrir frekari upplýsingar.