Byko
Byko

Fréttir

Vill friða einstakar klappir og jökulrásir við Hrauntún
Mánudagur 23. mars 2026 kl. 14:07

Vill friða einstakar klappir og jökulrásir við Hrauntún

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi sem felur í sér að íbúðasvæði við Hrauntún í Keflavík verði minnkað til að vernda einstök náttúruvætti.

Um er að ræða óraskað svæði í grónu hverfi þar sem jökulrásir eru vel sjáanlegar í klöppunum. Svæðið þykir nokkuð einstakt á þessum stað en það er að hluta til gróið.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Valið á milli byggðar og verndar

Samkvæmt gögnum ráðsins væri tæknilega mögulegt að sprengja niður lóð fyrir eitt einbýlishús eða parhús á svæðinu. Niðurstaðan er hins vegar sú að „illmögulegt“ sé að nýta svæðið undir byggingar og vernda náttúruvættin samtímis.

Þá er bent á að byggð sé þegar þétt á þessum stað og búast megi við andstöðu íbúa í hverfinu ef ráðist yrði í frekari húsbyggingar á þessum reit.

Hverfisvernd teygð til suðurs

Tillagan sem nú er unnið eftir hljóðar upp á að:

  • Hverfisvernd sem nú þegar er yfir Kirkjugarði Keflavíkur verði teygð til suðurs yfir klappirnar.

  • Íbúðasvæði í aðalskipulagi verði minnkað sem þessum reit nemur.

  • Svæðið verði skilgreint sem opið svæði með hverfisvernd.

Umhverfis- og skipulagsráð hefur þegar samþykkt að unnin verði formleg tillaga að þessari breytingu á aðalskipulagi bæjarins.