Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

United Airlines flýgur milli KEF og Chicago næsta vetur
Miðvikudagur 25. mars 2026 kl. 09:30

United Airlines flýgur milli KEF og Chicago næsta vetur

Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago á vetraráætlun sinni 2026/2027. Fyrsta koma sumarsins verður 13. maí næstkomandi og verður fluginu áframhaldið til byrjun janúar 2027. Sala á ferðum hefst á föstudaginn. Flogið verður þrisvar í viku milli KEF og Chicago yfir veturinn á Boeing 737 Max 8 vélum United Airlines en daglegt flug verður í boði í sumar sem áður hafði verið tilkynnt.
„Þetta er í fyrsta sinn síðan 2018, þ.e. fyrir heimsfaraldurinn, sem bandarískt flugfélag hefur áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli á vetraráætlun sinni,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF. „Við höfum á síðustu árum átt afskaplega farsælt og gott samstarf við United Airlines. Það hefur lengi verið verkefni hjá okkur á KEF að fá flugfélag frá Norður-Ameríku til að fljúga til og frá vellinum að vetri. Það er því fagnaðarefni að  United Airlines  hafi ákveðið að bæta KEF við áætlun sína fyrir næsta vetur. Félagið sýnir þannig traust sitt á Íslandi sem áfangstað. Við hlökkum til að styrkja samstarfið við United Airlines enn frekar.“
United Airlines hóf flug milli Keflavíkur og New York/Newark í maí 2018 og bætti við Chicago sem áfangastað sumarið 2021. Félagið er með beint flug frá Chicago og New York/Newark til KEF næsta sumar og hefur einnig tilkynnt um flug milli KEF og nýs áfangastaðar, Washington, og hefst það áætlunarflug sumarið 2026.
Miðbæjareignir
Miðbæjareignir