Tónlistarskóli Reykjanesbæjar á Svæðistónleikum Nótunnar nk. laugardag
„Nótan-uppskeruhátíð tónlistarskóla“ stendur fyrir tónleikum á nokkrum stöðum á landinu nk. laugardag, þann 18. apríl, þar sem fram koma nemendur tónlistarskóla eftir landsvæðum.
Í Salnum í Kópavogi verða tvennir tónleikar fyrir svæðið Kraginn, Suðurland og Suðurnes. Alls munu 10 tónlistarskólar frá þessu svæði taka þátt. Fyrri tónleikarnir verða kl. 11:00 og þeir seinni kl. 13:00.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar tekur þátt í hátíðinni og teflir fram þremur atriðum á tónleikunum kl.13:00, sem eru fjórhent píanóatriði, strengjakvartett og tríóatriði úr gamanóperunni Gianni Schicchi. Sjá nánar á vef skólans; tonrnb.is og á Facebook.
Aðgangur að tónleikum Nótunnar er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Þeir sem hafa tök á eru hvattir til að mæta í Salinn í Kópavogi á laugardaginn.
Tónlistarskólinn ásamt Óperufélaginu Norðurópi er að vinna að uppsetningu óperunnar „Gianni Schicchi“ eftir G. Puccini. Sýningar verða í Stapa, Hljómahöll. Jóhann Smári Sævarsson hefur þýtt óperuna og staðfært á Suðurnesin sem mun auka á skemmtilegheitin fyrir heimamenn. Frumsýning verður 15. maí nk.




