Líf farmannsins á Sagnastund á Garðskaga
Sagnastund verður haldin á Garðskaga laugardaginn 18. apríl 2026 kl 15:00.
Jón Steinar Árnason útgerðarmaður farskipa og skipstjóri er frásagnagóður. Hann lenti í ýmsu. Jón kemur á sagnastund og segir frá. Viðburðir í sjóferðum og átök og samkeppni í vöruflutningum.
Jón gerði út flutningaskipið Ísberg, flutti frosin fisk til Evrópu. Ísberg varð fyrir ásiglingu stærra skips utan við Grimsby og sökk. Jón segir þá sögu.
Hann gefur gestum á sagnastund innsæi í líf farmannsins á hreinskilinn hátt.
Allir velkomnir, ekki aðgangsgjald, veitingahúsið er opið.
Áhugamenn um sagnastund á Garðskaga.





