Langbest nýr matseðill á morgun
Langbest nýr matseðill á morgun

Mannlíf

Síðasta sýningarvika Skáldasuð
Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari.
Miðvikudagur 22. apríl 2026 kl. 10:18

Síðasta sýningarvika Skáldasuð

– opið á sumardaginn fyrsta og listamannaspjall og leiðsögn kl.15 með Gunnhildi Þórðardóttur og örupplestrar 24 apríl

Skáldasuð er ljóða og listahátíð suður með sjó þar sem reyndir og nýir listamenn og skáld geta komið saman og átt samtal við áheyrendur. Skáldasuð er nú haldin í þriðja sinn og opnaði 9. apríl sl. en hátíðinni lýkur nú á sunndag 26. apríl. Hátíðinni hefur verið fagnað með sýningu í Duus safnahúsum, hefðbundnum upplestrum með skáldum s.s. Steinunni Helgadóttur, Gunnari J. Straumland, Mazen Maarouf, Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur, Ewu Marcinek ásamt Febrúar, Margréti Gísladóttur og Ægir Karl. Einnig hafa verið listsmiðjur fyrir börn og eru ljóð og list um allan bæ; ljóð í leiðinni á göngustígum og í kjörbúðum, ljóð í lauginni í Stapalaug og Vatnaveröld. Hátíðin er hugarfóstur listamannsins og skáldsins Gunnhildar Þórðardóttur en hún hefur starfað sem virkur myndlistarmaður og skáld í yfir tuttugu ár og starfar einnig sem kennari.

Skáldasuð er líka fyrir börn og ungmenni sem geta tekið þátt sem skapandi einstaklingar og einnig hið fjölbreytta samfélag sem við búum í Reykjanesbæ. Börn á miðstigi Myllubakkaskóla og aðrir nemendur taka einnig þátt í hátíðinni með ljóðum víða um bæinn. Ljóðskáld á göngustígum, búðum og sundlaug fyrir utan nemendur eru; Vilborg Dagbjartsdóttir, Gríma Kamban, Gunnhildur Þórðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Guðergur Bergsson, Ingunn Snædal, Jónas Reynir Gunnarsson, Sigurjón Bergþór Daðason og Una Björk Kjerúlf.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Sýning Skáldasuðs í ár, Heilun, inniheldur allt verk sem hafa texta að leiðarljósi, eru hugmyndir að ljóðverkum eða verk sem hafa heilun sem innblástur eða hafa pólitíska skírskotun. Listamennirnir sem taka þátt eru Guðjón Ketilsson, Helgi Gíslason, Logi Bjarnason, Sandra Ólafsdóttir, Ethorio, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Seweryn Chwala, Kristín Rúnarsdóttir, Sandra María Sigurðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir og Þórarinn Ingi Jónsson.

Sýningin er haldin í Bíósal Duushúsa og er opin þriðjudaga til sunnudaga 12-17 og verður opið á sumardaginn fyrsta 12-17 en þá mun Gunnhildur leiða spjall um sýninguna kl.15. 

Höfundur hátíðarinnar hefur einnig haldið örupplestra í sundlaugum og á göngustígum á dagana yfir hátíðina og mun gera slíkt 24. apríl nk. en þeim hefur verður varpað á  facebook síðu Skáldasuðs https://www.facebook.com/p/Sk%C3%A1ldasu%C3%B0-Poetry-Pulse-61556944346320/

Þess má geta að hátíðin fer í útrás í maílok til Seyðisfjarðar og Egilsstaða sem systurhátíð Skáldasuð, Skáldaþing, vísun í Múlaþing og verkefnastjóri hátíðarinnar þar er Katla Rut Pétursdóttir. Þá eru flestir listamenn sem taka þátt í sýningunni tengdir Suðurnesjum og Austfjörðum.

Um höfund Skáldasuðs:

Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari eins og áður sagði. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur gefið út sjö ljóðabækur og tekið þátt í fjölda upplestra.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir