Húsfyllir á baráttudegi verkafólks
Húsfyllir var í Stapa á baráttudegi verkafólks, 1. maí en yfir þrjúhundruð manns mættu og nutu fjölbreyttrar skemmtidagskrár og hátíðarræðu sem Kristján Gunnarsson, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum flutti.
Ungleikhúsið, Leikfélag Keflavíkur og Kósýbandið héldu uppi léttleikanum í Stapa en Kristján var á alvarlegri nótum og sagði: „Það er ömurlegt að í einu ríkasta landi heims skuli vera til hópur eldri borgara sem hefur unnið alla ævi en á ekki fyrir nauðþurftum.“
Kristján rifjaði upp tengsl sín við verkalýðshreyfinguna og benti á að stór hluti eldri borgara hafi áratugum saman tekið þátt í baráttunni fyrir bættum kjörum. FEBS telur um þrjú þúsund félagsmenn á Suðurnesjum og er hluti af Landsambandi eldri borgara, sem nær til um 40 þúsund manns á landsvísu.
Í ræðu sinni lagði hann áherslu á að kjör eldri borgara hefðu setið eftir og að margir ættu erfitt með að framfleyta sér, sérstaklega þeir sem búa á leigumarkaði. Hann fagnaði því að Alþingi hefði samþykkt að tengja greiðslur til eldri borgara við launavísitölu og kallaði það mikilvægt framfaraskref, þó enn væri langt í land að jafna þann mun sem hefði myndast.
Kristján hvatti til áframhaldandi baráttu fyrir réttlátari kjörum og benti á að stór hluti hækkana skili sér aftur til ríkisins í formi skatta og gjalda. Þá undirstrikaði hann mikilvægi þess að fylgjast vel með framkvæmd nýrra laga.
Hann vék einnig að efnahagsástandinu og gagnrýndi áhrif stýrivaxtahækkana, sem hann sagði bitna harkalega á heimilum, ekki síst ungu fólki. Að hans mati væri verðbólga ekki drifin áfram af launahækkunum heldur því að aðrir aðilar hefðu ekki staðið við sín loforð.
Að lokum lagði Kristján áherslu á mikilvægi samstöðu og hvatti bæði eldri borgara og verkalýðshreyfinguna til að standa saman.
„Á fyrsta maí lítum við gjarnan til baka í sögunni. Horfum um öxl og lítum á stóru myndina. Við höfum náð árangri, og gengið til góðs. Á því leikur enginn vafi. Við getum rifjað upp fjölmörg stór framfaraskref sem við höfum stigið og getum verið afar stolt af: Ég nefni hér Lífeyrissjóðina, Sjúkrasjóðina, Orlofsheimilasjóði, Atvinnuleysistryggingarnar, Starfsmenntasjóðina, starfsendurhæfingu og áfram má telja. Þetta eru litlir sigrar, þetta eru stórir áfangar sem eiga sinn stóra þátt í velmegun íslensku þjóðarinnar. Þessi réttindi komu samt ekki bara af sjálfu sér í einhverju tómarúmi, þau komu fyrir baráttu verkafólks oftast í tengslum við gerð kjarasamninga. Þessu megum við aldrei gleyma og ekki heldur hinu, að þetta hefði ekki orðið að veruleika nema vegna baráttu verkalýðshreyfingarinnar. Þannig verður það um ókomna tíð. Þessu lýkur aldrei. Baráttan fyrir betri kjörum er sameiginleg,“ sagði hann og óskaði fundargestum til hamingju með daginn.
Kór Njarðvíkurkirkju átti lokaorðin í Stapa og tók nokkur lög. Hann endaði dagskránna með því að syngja „Internationalinn“, baráttusöng verkafólks og fékk hátíðargesti með sér í lið.
Sjá fleiri myndir hér að neðan.







