Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Aðsent

Þessa stefnu þarf að stöðva
Laugardagur 9. maí 2026 kl. 10:16

Þessa stefnu þarf að stöðva

Í Reykjanesbæ ólst ég upp við það sjálfsagða frelsi að fólk gæti valið sér búsetuform sem hentaði þörfum þess og draumum. Foreldrar mínir nutu þess frelsis og ég sömuleiðis. Nú vil ég að strákarnir mínir þrír, sem allir eru komnir yfir tvítugt, hafi sömu tækifæri til að byggja sér góða framtíð hér heima. 

Ég held að flestir foreldrar vilji það sama fyrir börnin sín, að þau geti sest að í sinni heimabyggð og valið sér húsnæði við hæfi sem þjónar þörfum fjölskyldna þeirra.

Aðalbros
Aðalbros

Sem rótgrónum Suðurnesjamanni hefur mér þótt ákaflega dapurlegt að fylgjast með þróuninni í skipulagsmálum í Reykjanesbæ síðustu árin. Meirihlutinn undir forystu Framsóknar og Samfylkingarinnar hefur markvisst ýtt undir blokkabyggð og nú virðist stefnt að því að gefa enn frekar í. Ef fram heldur sem horfir mun nær allt nýtt íbúðarhúsnæði á komandi árum rísa í fjölbýlishúsum.

Ég hef ekki orðið var við að bæjarbúar hafi kallað eftir svona einhliða þróun. Þvert á móti heyri ég sífellt fleiri lýsa yfir áhyggjum af því að fjölskyldur hafi minna raunverulegt val um hvernig þær vilji búa. Einungis einn flokkur hefur talað gegn blokkastefnunni og það er Sjálfstæðisflokkurinn. 

Ef ekkert breytist eftir næstu kosningar blasir við að þessi stefna verður áfram keyrð af fullum þunga.

Þetta þarf ekki að vera flókið. Það er enginn að halda því fram að Reykjanesbær skuli eingöngu byggjast upp af stórum einbýlishúsum. Það sem vantar er skynsamlegt jafnvægi og fjölbreytni í skipulagi. Við eigum að byggja fjölskylduvæn hverfi með blandaðri byggð þar sem finna má einbýlishús, raðhús, parhús, tvíbýli, fjórbýli og lágreist fjölbýli sem falla vel að umhverfinu.

Slík uppbygging þjónar betur þörfum fólks og skapar heilbrigðari og fallegri byggð. Hún gerir ungu fólki kleift að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, fjölskyldum að stækka við sig og auðveldar eldri borgurum að finna hentugt húsnæði í stað þess að skerða valfrelsi með einsleitu búsetuformi.

Ef Reykjanesbær á áfram að vera samkeppnishæft og eftirsóknarvert samfélag þurfum við að hugsa lengra en næsta deiliskipulag nær. Við þurfum að skapa fallegt samfélag þar sem ungt fólk velur að búa áfram, þar sem fjölskyldufólk sér framtíð fyrir sig og sína og þar sem ásýnd bæjarins endurspeglar metnað, fjölbreytni og lífsgæði.

Þess vegna tel ég að tími sé kominn til breytinga. Ef þú deilir þessum áhyggjum og vilt sjá fjölbreyttari og fjölskylduvænni uppbyggingu í Reykjanesbæ hvet ég þig til þess að styðja Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum.

Skarphéðinn Njálsson

Höfundi þykir vænt um bæinn sinn

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar