Hvert ætlum við að fara?
Vá hvernig nennirðu að standa í þessu?
Þetta er einhverra hluta vegna algengasta spurningin sem ég hef fengið í kosningabaráttunni hingað til. Svarið er frekar einfalt Þetta er bærinn minn. Hér hef ég alltaf búið og hér vil ég halda áfram að búa. Af hverju þá ekki að leggja sitt af mörkum og taka þátt. Suðurnesjabær er sveitarfélag fullt af tækifærum. Nú þurfum við að snúa bökum saman nýta tækifærin og gera samfélagið okkar að því besta sem þekkist.
En hvert ætlum við að fara?
Undanfarið hefur umræðan í samfélaginu oft verið neikvæð. Margt hefur verið gagnrýnt, jafnvel harkalega. Ég skil það vel, það er eðlilegt og heilbrigt að fólk hafi skoðanir. En á sama tíma þurfum við að spyrja okkur hvert viljum við að umræðan leiði okkur?
Við byggjum ekki sterkt samfélag með því að draga hvert annað niður. Við byggjum það á samvinnu trausti og jákvæðni. Þar viljum við á S-listanum vera.
Við þurfum að færa fókusinn frá fortíðinni og yfir í nútíðina og framtíðina. Hvernig samfélag viljum við að Suðurnesjabær verði eftir 10, 20 eða 30 ár? Og hvernig komumst við þangað saman?
Við á S listanum trúum á tækifærin í Suðurnesjabæ. Sameining sveitarfélagsins fyrir átta árum á ekki að skipta okkur í fylkingar heldur sameina okkur í að byggja upp öflugra samfélag fyrir okkur öll. Hér býr frábært fólk fullt af eldmóði. Ef okkur tekst að beisla þann kraft er framtíðin björt.
Það sem skiptir máli er að við búum í samfélagi þar sem fólk fær tækifæri, þar sem tekið er tillit til allra og þar sem þjónustan virkar fyrir fólkið sem treystir á hana. Þetta snýst ekki alltaf um stóru málin heldur líka um þessi mörgu litlu sem skipta sköpum í daglegu lífi.
Í stefnuskrá S listans kemur skýrt fram að við viljum sækja fram. Markmiðin eru skýr og raunhæf og við erum tilbúin að bretta upp ermar
- við ætlum í markvissa vinnu við að lækka álögur á íbúa
- við ætlum að tryggja barnafjölskyldum lægri leikskólagjöld
- við ætlum að hlúa vel að eldri borgurunum okkar
- við ætlum að fjárfesta í íþrótta og tómstundamálum barna og ungmenna
- við ætlum að tryggja að Suðurnesjabær verði framúrskarandi velferðarsamfélag
- við ætlum að halda áfram að byggja upp frábæran Suðurnesjabæ
Sterkt samfélag verður ekki til af tilviljun. Það verður til þegar fólk ákveður að vinna saman.
Setjum X við S þann 16. maí.
Svavar Grétarsson,
oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ






