Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Rekum sveitarfélagið af ábyrgð og varkárni
Föstudagur 8. maí 2026 kl. 10:32

Rekum sveitarfélagið af ábyrgð og varkárni

Það er auðvelt að lofa gulli og grænum skógum þegar allt virðist ganga vel. Það er auðvelt að tala um „uppbyggingu“, „framtíðarsýn“ og „sókn“. En íbúar í Reykjanesbær vita betur en flestir hvað gerist þegar ábyrgðarlaus stjórnun fær að vaða uppi árum saman án aðhalds.

Árin 2002 til 2014 voru ekki bara erfitt tímabil í sögu bæjarins — þau voru pólitískt skipbrot. Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn stýrði bænum var skuldsett út í hið óendanlega, farið í framkvæmdir sem bæjarfélagið hafði ekki burði til að standa undir og byggt á hættulegri trú á að góðærið myndi aldrei enda. Síðan kom raunveruleikinn. Bærinn skilinn eftir í skuldafeninu

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þegar hrunið skall á kom í ljós að Reykjanesbær stóð á veikum grunni. Skuldir höfðu vaxið gríðarlega, reksturinn var ósjálfbær og íbúarnir sátu eftir með afleiðingarnar. Á meðan venjulegt fólk missti vinnu, glímdi við óöryggi og þurfti að herða sultarólina, var bæjarfélagið fast í skuldaklafa sem tók mörg ár að vinna sig út úr. Þjónusta var skorin niður, traust til stjórnmálanna hrundi og framtíð margra fjölskyldna varð óviss.

Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta var afleiðing pólitískra ákvarðana. Afleiðing stjórnunar sem byggði meira á monti og áhættusækni en ábyrgð og skynsemi.

Fólk má ekki gleyma þessu. Það sem er hættulegast í pólitík er stutt minni kjósenda. Ár líða, ný andlit birtast og gömul loforð enduróma eins og ekkert slæmt hafi áður gerst.

Við megum ekki gleyma því hvernig bæjarfélagið var skilið eftir. Við megum ekki láta eins og þetta hafi bara verið „óheppni“ eða eitthvað sem enginn gat séð fyrir. Fjöldi fólks varaði við skuldsetningunni og þeirri stefnu sem ákveðið var að fylgja - en var ekki hlustað á. Íbúar Reykjanesbæjar fengu að gjalda dýru verði. Og enn í dag greiða margir fyrir mistök sem gerð voru á þessum árum.

Við megum ekki gera sömu mistök aftur. Kosningar mega ekki bara snúast um falleg slagorð eða hver talar hæst á samfélagsmiðlum. Þær snúast um dómgreind, ábyrgð og hvort fólk hafi lært af fortíðinni.

Ef eitthvað má læra af árunum 2002–2014, þá er það þetta: Við megum aldrei aftur afhenda fólki stjórn bæjarins sem sýndi að það gat keyrt sveitarfélagið á barm gjaldþrots með ábyrgðarlausri fjármálastjórn.

Reykjanesbær verðskuldar stöðugleika, ábyrgð og stjórnmálafólk sem setur hagsmuni íbúanna ofar pólitísku glansmyndinni. Íbúar hafa þegar einu sinni verið illa brenndir. Það væri óafsakanlegt að leyfa sömu mistökunum að endurtaka sig.

Undirritaður er skipar 11 sæti lista Viðreisnar
Jón Garðar Snædal Jónsson

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar