Aðsent

Tækifærið er núna – skipulag og framtíðarsýn í Reykjanesbæ
Föstudagur 8. maí 2026 kl. 10:08

Tækifærið er núna – skipulag og framtíðarsýn í Reykjanesbæ

Skipulag skiptir sköpum í ört vaxandi bæjarfélagi eins og Reykjanesbæ. Þegar byggð stækkar hratt þarf að huga að mörgum þáttum samtímis: húsnæði, samgöngum og aðgengi að þjónustu. Með vönduðu skipulagi er hægt að skapa fjölskylduvæn hverfi þar sem íbúar njóta góðs aðgengis að verslun, þjónustu og samgöngum frá fyrsta degi.

Við í Miðflokknum teljum að gera megi betur í skipulagi nýrra hverfa. Mikilvægt er að þjónusta sé til staðar samhliða uppbyggingu og að tekið sé mið af gangandi vegfarendum. Það er ekki ásættanlegt að opna verslunar- og þjónustusvæði án þess að tryggt sé öruggt aðgengi, svo sem gangstéttir og gangbrautir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Reykjanesbær hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og byggðin dafnað vel. Hins vegar hefur skortur á fjölbreytni í húsnæðisframboði verið áberandi, sérstaklega hvað varðar sérbýli. Við viljum sjá fjölbreyttari uppbyggingu þar sem íbúar hafa raunverulegt val um búsetuform.

Græn svæði og aðstaða til útivistar skipta miklu máli fyrir lífsgæði og heilsu fólks og mikilvægt er að slíkum svæðum verði ekki fórnað í uppbyggingu.

Reykjanesbær hefur margt fram að færa, þar á meðal öflugt net göngu- og hjólreiðastíga sem ber að hrósa. Við viljum halda áfram á þeirri braut og efla enn frekar vistvænar samgöngur, samhliða nauðsynlegri uppbyggingu almenningssamgangna.

Íbúalýðræði er grundvallaratriði í okkar samfélagi. Það er mikilvægt að íbúar hafi raunveruleg áhrif á þróun bæjarfélagsins og að á þá sé hlustað.

Skipulag miðbæjarins er einnig stórt verkefni fram undan. Þar getum við horft til annarra sveitarfélaga, eins og Selfoss, þar sem vel hefur tekist til við uppbyggingu lifandi og aðlaðandi miðbæjar.

Að auki teljum við mikilvægt að ráðast í aukna gróðursetningu og fegrun bæjarins, sem eykur bæði vellíðan íbúa og ásýnd umhverfisins.

Samgöngumál kalla á tafarlausar úrbætur. Umferðin í mörgum hverfum er orðin of þung fyrir gatnakerfið og umferðarteppur myndast reglulega á álagstímum. Það vekur furðu að ný hverfi séu byggð án þess að samhliða sé ráðist í uppbyggingu nýrra stofnæða eða viðhald þeirra sem fyrir eru. Lokanir á lykilleiðum, svo sem Njarðarbraut, leiða til aukins álags á aðrar leiðir eins og Reykjanesbraut frá Fitjum, með tilheyrandi töfum og hættum.

Við í Miðflokknum viljum sjá heildstæða og ábyrgari uppbyggingu þar sem tekið er mið af framtíðinni, þörfum íbúa og sjálfbærni samfélagsins.

Reykjanesbær er metnaðarfullt og öflugt bæjarfélag með góða innviði, þar á meðal skóla og íþróttamannvirki. Við viljum byggja áfram á þeim góða grunni og tryggja að þróun bæjarins sé í þágu allra íbúa.

Sigrún Þorsteinsdóttir

Frambjóðandi Miðflokksins og formaður Miðflokksdeildar Reykjanesbæjar

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar