Íþróttir

Keflvíkingar náðu í þrjú stig á Skipaskaga
Bakvörðurinn Axel Ingi skoraði annað mark Keflvíkinga á Skipaskaga. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 8. maí 2026 kl. 23:59

Keflvíkingar náðu í þrjú stig á Skipaskaga

Keflvíkingar sóttu þrjú stig á Skipaskaga eftir flottan 1-3 sigur á heimamönnum í Bestu deild karla í knattspyrnu. Með sigrinum lyftu Keflvíkingar sér upp í efri helming deildarinnar með sjö stig.

Ásgeir Páll Magnússon skoraði fyrsta mark Keflvíkinga á 30.mínútu með nettum skalla eftir hornspyrnu Alghoul.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Heimamenn voru aðeins meira með boltann en náðu ekki að skapa sér hættuleg marktækifæri.

Axel Ingi Jóhannesson, hægri bakvörður Keflavíkur skoraði skemmtilegt mark á 64. mínútu eftir flotta sókn þar sem Eiður Orri Ragnarsson sendi á hann inn í teig. Bakvörðurinn tók við boltanum og sendi hann í markið á nærstöngina, 0-2.

Stefan Ljubicic skoraði þriðja mark Keflvíkinga á 71. mínútu á snyrtilegan hátt. Hann fékk sendingu frá Alpha Conteh sem vann boltann á miðjum velli og sendi hann inn að teig. Ljubicic tók þar við boltanum og kláraði dæmið með flottu marki og kom Keflvíkingum í 0-3. Fjórða mark Stefans sem hefur verið öflugur í byrjun móts.

Þó heimamenn næðu að setja mark á 78. mín.  Var sigur Keflvíkinga aldrei í hættu.

Með sigrinum eru Keflvíkingar komnir í 6. sæti deildarinnar með sjö stig.

Staðan í deildinni.

Haraldur þjálfari Keflavíkur  var í viðtali hjá fotbolti.net eftir leik.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar