Íþróttastarf og íþróttamannvirki í Vogum
Allt sem þú elur upp, það vex! Fjórum árum síðar...
Fyrir tæpum fjórum árum í aðdraganda kosninga 2022, skrifaði ég grein sem bar heitið „Uppbygging íþróttamannvirkja í Vogum“. Þar skrifaði ég um mikilvægi íþrótta- og æskulýðsstarfs, uppbyggingu aðstöðu, forvarnargildi íþróttastarfs og mikilvægi þess að skapa umhverfi þar sem börn, ungmenni og fjölskyldur geta blómstrað. Stefnuskrá allra flokka gaf einnig tilefni til bjartsýni.
Núna, tæpum fjórum árum síðar og aftur í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, ákvað ég að birta greinina aftur óbreytta og áhugasamir geta kynnt sér hana hér: https://www.vf.is/adsent/uppbygging-ithrottamannvirkja-i-vogum
Hvernig er staðan í dag?
Þegar ég skrifaði greinina árið 2022 voru íbúar í Vogum töluvert færri en þeir eru í dag. Nú eru um 720 fleiri íbúar í sveitarfélaginu og samfélagið hefur stækkað hratt á stuttum tíma. Það eitt og sér undirstrikar enn betur mikilvægi þess að huga að íþrótta- og æskulýðsmálum til framtíðar. Það var lengi ljóst að íbúum myndi fjölga hratt.
Síðustu fjögur ár hafa verið bæði krefjandi og lærdómsrík. Margt hefur breyst á skömmum tíma. Starfsemi íþróttafélaga hefur þróast hratt, verkefnum fjölgað og samstarfsaðilar orðið fleiri. Það kallar á meiri vinnu frá starfsfólki, stjórnum og sjálfboðaliðum sem halda starfinu gangandi á hverjum degi.
Landsmót sem sameinaði samfélagið
Eitt af því sem stendur upp úr á þessum árum er án efa Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var í Vogum árið 2024. Það var glæsileg kynning fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt. Fjölmargir gestir komu til Voga og tóku þátt í hinum ýmsu íþróttagreinum og það var einstakt að sjá samheldnina sem myndaðist í kringum mótið.
Það var líka magnað að fylgjast með ungri konu leiða verkefnið sem formaður félagsins og sýna hinn sanna samfélagsanda, að sjá samfélagið sameinast um að sækja heilt Landsmót UMFÍ 50+ til Voga er eitthvað sem ég gleymi seint.
Það var táknrænt og ánægjulegt að sjá fyrrum oddvita í Vogum taka þátt í landsmótinu. Jón Gunnarsson kom á sínum tíma að þeirri stóru ákvörðun árið 1992 að ráðast í byggingu íþróttahúss og sundlaugar fyrir þáverandi 500 manna hrepp. Það þurfti hugrekki og framsýni til að taka slíka ákvörðun á þeim tíma og sú ákvörðun hefur skilað samfélaginu gríðarlega miklu.
Landsmótið skilaði ekki bara frábærum minningum og félagslegri farsæld heldur einnig fjármagni inn í samfélagið. Tekjur og stuðningur vegna mótsins skiluðu miklum fjármunum bæði til UMFÞ, annarra félagasamtaka í sveitarfélaginu og milljónir frá uppbyggingarsjóði landsmótsstaða fóru í viðhald á sundlaug. Þetta sýnir vel hvernig hugsjónafólk innan íþróttastarfs og sjálfboðaliðar geta haft jákvæð áhrif langt út fyrir íþróttirnar sjálfar.
Öflugt starf skilar sér til baka
Það sama má segja um meistaraflokksstarf Þróttar í knattspyrnu. Með þátttöku í meistaraflokksstarfi hefur ungmennastarfið fengið mikilvægan fjárstuðning í gegnum aðildarstyrk KSÍ sem hefur skilað sér beint inn í barna- og unglingastarfið þvert á íþróttagreinar innan Þróttar. Það skiptir miklu máli fyrir lítið félag þar sem æfingagjöld duga oftar en ekki fyrir launum þjálfara. Það þarf að fara huga að stofnun meistaraflokks kvenna í dag. Það eru öflugar stelpur að æfa knattspyrnu í Vogum og aðrar sem hafa þurft að fara annað vegna fámennis þegar komið er í 4. flokk.
Börnin sem við þurfum að ná til og hlúa vel að þeim sem fyrir eru
Á sama tíma hef ég miklar áhyggjur af ákveðinni þróun sem við sjáum í dag. Það eru of mörg börn og sérstaklega unglingar sem taka ekki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Sveitarfélagið, íþróttafélögin og Svæðisstöð íþróttahéraða hafa brugðist við og meðal annars stofnað til samráðshóps. Samkvæmt könnun sem Svæðisstöð íþróttahéraða á Suðurnesjum stóð fyrir í Stóru- Vogaskóla þá eru nokkrar ástæður fyrir því að unglingar eru ekki í íþróttum eða tómstundum.
Það eru í dag gríðarlega miklar kröfur gerðar til íþróttafélaga og á sama tíma er skortur á þjálfurum og sjálfboðaliðum. Við viljum halda úti æfingum með faglærðum þjálfurum, öflugu foreldrastarfi, skapa jákvæða menningu og umhverfi þar sem börn og ungmenni fá að blómstra. Það er öflugasta forvarnarstarfið sem við eigum og það smitar út frá sér. Það eru börn sem glíma við fötlun og þurfa jafnvel aðstoð í skólanum. Það verður að horfa lengra inn í daglegt líf barna, liðveisla eða stuðningur þarf að ná inn í íþróttastarfið. Gefum öllum börnum jöfn tækifæri.
Ef við gerum þetta vel og hugsum vel um öll börn þá skilum við öflugari einstaklingum út í lífið, þarna búum við líka til framtíðarþjálfara, sjálfboðaliða, stuðningsfólk, stjórnarfólk og jafnvel landsliðsfólk í einhverjum íþróttagreinum.
Við erum einnig með einn glæsilegasta golfvöll landsins og gott fólk sem heldur utan um golfklúbbinn. Þarna er að finna gullið tækifæri sem við öll getum nýtt okkur og ekki má gleyma Hestamannafélaginu Mána.
Þrátt fyrir aðstöðuleysi getum við náð árangri
Meistaraflokkur Þróttar í knattspyrnu hefur sýnt síðustu ár að það er hægt að ná langt þrátt fyrir aðstöðuleysi. Þrátt fyrir að vera eitt af fáum félögum sem getur ekki æft heima yfir vetrartímann hefur liðinu tekist að festa sig í sessi meðal sterkustu liða 2. deildar.
Þar skiptir mestu máli fólkið í kringum félagið. Sjálfboðaliðar, stjórnin, stuðningsfólkið og krakkarnir sem minna leikmenn daglega á mikilvægi þess að vera góðar fyrirmyndir. Fjórði flokkur karla og kvenna í fótboltanum skilaði 40 manna hópi alla leið til Salou sumarið 2022. Þrátt fyrir að vera með sundlaug sem er ekki lögleg nema fyrir héraðsmót og án gervigrasvallar eða annarrar aðstöðu sem víða þykir sjálfsögð, þá getum við samt skapað umhverfi sem lyftir okkur á hærra plan.
Við getum verið skemmtilegasta félagið, verið best í litlu hlutunum sem kosta ekki neitt og þá gerast töfrarnir.
Að lokum
Ég vona svo innilega að næsta bæjarstjórn og nefndir innan sveitarfélagsins sameinist um að hugsa til framtíðar og setja samfélagið, börnin og íþróttirnar í fyrsta sæti. Búum til gott umhverfi og náum öllum ungmennum 18 ára og yngri í skipulagt íþróttastarf, setjum markið hátt og stefnum á 100% þátttöku barna í íþrótta og æskulýðsstarfi fyrir árið 2030. Við getum það með öflugum stuðningi sveitarfélagsins, öflugum þjálfurum, öflugum stuðningi við sjálfboðaliða, samvinnu og góðum stuðningi við UMFÞ og önnur íþróttafélög. Ég trúi!!!
Góð aðstaða laðar að og heldur í fagfólk, góð aðstaða elur upp fagfólk.
Kjósendur í Vogum og forráðamenn ungra barna í Vogum, núna er tækifærið. Kynnið ykkur íþrótta- og æskulýðsmál í stefnuskrá allra framboða. Komið ykkar skoðunum á framfæri.
Í lokin vil ég þakka öllu því fólki sem hefur lagt sitt af mörkum síðustu ár, bæði kjörnum fulltrúum, starfsfólki sveitarfélagsins , sjálfboðaliðum, þjálfurum, stjórnarfólki og öllum þeim sem hafa stutt við íþrótta- og æskulýðsstarf í Vogum. Ég óska sömuleiðis öllum nýkjörnum bæjarfulltrúum fyrirfram til hamingju. Gangi ykkur öllum vel, íbúum og bæjarfélagi til heilla.
Með Vogakveðju,
Marteinn Ægisson,
íbúi í Vogum.







