Frjáls félagasamtök, burðarstoðir samfélagsins
Kæru íbúar í Vogum.
Ég tel frjáls félagasamtök vera eina af burðarstoðum samfélagsins. Þar myndast tengsl, gleði og þátttaka og þar fá íbúar á öllum aldri tækifæri til að vaxa og finna sig. Þótt ég leggi sérstaka áherslu á börn og ungmenni, þá skiptir máli að horfa á heildina og styðja starf sem nær til allra aldurshópa.
Ástæðan fyrir því að ég legg mikið upp úr þessu er einföld. Sterk félagasamtök skapa sterkara samfélag. Þau auka samveru og bæta líðan.
Sveitarfélagið sem virkur bakhjarl
Ég vil að sveitarfélagið sé virkur bakhjarl. Með skýrum hvötum getum við hjálpað félögum að þróa starf sitt áfram og ná til fleiri íbúa. Ég vil til dæmis auka grunnstyrki til félaga sem halda úti reglulegu barna og unglingastarfi. Þá sé ég fyrir mér verkefnastyrk fyrir nýjar hugmyndir, þar sem félög geta prófað nýjar leiðir, hvort sem það er í íþróttum, listum eða öðru félagsstarfi.
Áhersla á jöfn tækifæri og fjölbreytni
Sérstök áhersla verður á börn og ungmenni, enda liggur framtíð samfélagsins þar. Á sama tíma vil ég tryggja að við styðjum einnig starf fyrir aðra aldurshópa, því þátttaka skiptir máli alla ævi. Ég vil einnig setja inn hvata sem stuðla að jafnara kynjahlutfalli í starfi og tryggja að bæði stelpur og strákar hafi jöfn tækifæri.
Þá vil ég koma á fót menninga- og tómstundasmiðju fyrir börn og unglinga og styrkja sérstaklega verkefni sem miða að því að ná til breiðari hóps og lækka þröskuldinn fyrir þátttöku. Fjölbreytni í starfi er lykilatriði. Með auknum stuðningi vil ég opna dyr fyrir fleiri, þar á meðal börn af erlendum uppruna og ungmenni sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu tómstundastarfi. Reynslan sýnir að þátttaka í skipulögðu starfi hefur jákvæð áhrif á líðan og félagsfærni barna og styrkir tengsl þeirra við samfélagið.
Samfelldur dagur og samþætting
Ég legg einnig ríka áherslu á samþættingu skóla, frístundar og félagsstarfs. Markmiðið er að dagur barna verði samfelldur og einfaldari fyrir fjölskyldur. Með því að tengja þessa þætti betur saman geta börn farið beint úr skóla yfir í tómstundir með stuðningi og skýru skipulagi. Þetta eykur þátttöku og dregur úr hindrunum. Áhersla á samfelldan dag barna og gott samstarf milli foreldra, skóla og frístundar hefur sýnt að hún eykur bæði virkni og vellíðan.
Samvinna
Að lokum snýst þetta um samvinnu. Ég vil efla samstarf milli sveitarfélagsins, skóla og félagasamtaka þannig að við vinnum öll í sömu átt. Við eigum að byggja upp samfélag þar sem fleiri taka þátt, finna sig og fá tækifæri til að blómstra.
Ég býð mig fram fyrir samfélagið okkar því ég trúi á samvinnu og jákvæða nálgun. Ég vil skapa vettvang þar sem raddir allra fá að heyrast og raunverulegan vilja til að vinna með fólkinu í sveitarfélaginu. Þar sem velferð íbúa, gagnsæ stjórnsýsla og ábyrg uppbygging fyrir alla eru í forgrunni.
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir
Skipar 2. sæti A-listans - Fyrir Samfélagið í Sveitarfélaginu Vogum









