Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Öflugri þjónusta og fleiri tækifæri fyrir eldri borgara í Vogum
Þriðjudagur 12. maí 2026 kl. 09:31

Öflugri þjónusta og fleiri tækifæri fyrir eldri borgara í Vogum

Eftir því sem maður eldist fer maður kannski að horfa aðeins öðruvísi að horfa á hlutina. Maður sér betur hvað skiptir raunverulega máli. Það er öryggi, góð heilsa, félagsskapur, að geta verið virkur og ekki síst að geta búið áfram í sínu samfélagi sem lengst.

Mér finnst mikilvægt að við í Vogum hugsum betur um það hvernig við viljum að samfélagið okkar taki utan um fólk þegar árin færast yfir. Eldri borgarar eru stór og mikilvægur hluti af samfélaginu okkar. Þar er reynsla, þekking og lífssýn sem við eigum að meta meira.

Aðalbros
Aðalbros

Í D-listanum viljum við leggja áherslu á málefni eldri borgara á næsta kjörtímabili.

Við viljum styrkja öldungaráð sveitarfélagsins og tryggja virkt samtal við ráðið þegar kemur að ákvörðunum er varða þjónustu, samgöngur og félagsstarfs. Það er einfaldlega skynsamlegt að hlusta á fólkið sem þekkir best hvernig hlutirnir virka í daglegu lífi.

Við viljum líka reyna að lækka kostnað við frístundir og félagsstarf hjá eldri borgurum, meðal annars með betri nýtingu frístundastyrksins. Félagsstarf, hreyfing og samvera skipta miklu máli og það á ekki að vera spurning um pyngjuna hvort fólk geti tekið þátt.

Svo þurfum við að hugsa betur um húsnæðismálin. Margir vilja minnka við sig en samt búa áfram í Vogum, nálægt fjölskyldu, vinum og samfélaginu sínu. Við viljum því stuðla að uppbyggingu íbúða fyrir 60+ og taka betur mið af þessum þörfum í skipulagi sveitarfélagsins.

Við viljum líka bæta akstursþjónustu fyrir eldri borgara enda skipta góðar samgöngur miklu máli, bæði fyrir sjálfstæði fólks og til að auðvelda aðgengi að þjónustu og félagslífi.

Síðan eru það oft litlu hlutirnir sem skipta meira máli en maður heldur. Betri lýsing á göngustígum, öruggari leiðir og betra aðgengi að fjörunni gera sveitarfélagið betra fyrir alla, ekki síst eldri borgara.

Við eigum að skapa samfélag þar sem eldri borgarar hafa aðgang að góðri þjónustu, geta búið áfram í Vogum og haft raunveruleg áhrif á sitt samfélag. Það er þannig samfélag sem við viljum byggja í Vogum. 

Hólmgrímur Rósenbergsson,
eldri borgari og skipar 8. sæti D-listans, Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar