Aðsent

Við erum í góðri stöðu til að gera meira
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 10:55

Við erum í góðri stöðu til að gera meira

Á því kjörtímabili sem nú er að líða undir lok hefur Suðurnesjabær vaxið með miklum hraða.

Frá 1. janúar 2022 til 1. janúar 2026 fjölgaði íbúum úr 3.648 í 4.232, eða um rúmlega 16%.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Nú í maí 2026 er áætlað að íbúar séu orðnir rúmlega 4.300. Slík fjölgun á svo stuttum tíma er öllum sveitarfélögum talsverð áskorun. Þegar svo hraður vöxtur á sér stað þarf sveitarfélagið að byggja upp innviði, styrkja þjónustu og fjárfesta í framtíðinni. Það kostar mikla fjármuni og krefst ábyrgðar í rekstri.

Á kjörtímabilinu hefur verið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar. Árin 2022 og 2023 var fjárfest í A og B hluta fyrir rúmar 1.215 milljónir. Árin 2024 og 2025 var fjárfest í A og B hluta fyrir tæpar 1.387 milljónir. Slíkar framkvæmdir, stórar sem smáar, eru nauðsynlegar í samfélagi sem vex jafn hratt og Suðurnesjabær. Margar fjárfestingar kjörtímabilsins munu nýtast íbúum sveitarfélagsins til langrar framtíðar.

Þrátt fyrir þessa miklu uppbyggingu hefur skuldastaða sveitarfélagsins batnað með hverju árinu. Samkvæmt fjárhagslegum viðmiðum sveitarfélaga má skuldahlutfall hæst vera 150% af reglulegum tekjum. Í Suðurnesjabæ var skuldahlutfall A-hluta aðeins 36,28% árið 2025 og 52,28% fyrir samstæðu A- og B-hluta. Þetta sýnir að sveitarfélagið stendur betur í fjárhagslegu tilliti heldur en mörg önnur sveitarfélög á landinu.

Rekstur bæjarins hefur styrkst verulega á síðari hluta kjörtímabilsins. Árin 2022 og 2023 var samanlagt rekstrartap á A og B hluta bæjarsjóðs rúmar 73 milljónir króna, niðurstaðan var neikvæð bæði árin. Árið 2024 hafði staðan snúist við í rúmlega 376 milljóna króna rekstrarafgang og árið 2025 var afgangurinn rúmar 401 milljónir króna, samtals 777 milljónir króna.

Lausafjárstaðan hefur einnig verið góð. Veltufjárhlutfall A-hluta var 1,80 árið 2025 sem telst mjög fín staða og sýnir að sveitarfélagið hefur gott svigrúm til að standa við skuldbindingar sínar og mæta óvæntum verkefnum.

Fjárfestingaáætlun A og B hluta fyrir árið 2026 hljóðar upp á rúmar 782 milljónir króna. Verkefnin eru af ýmsum toga, til dæmis:

-Malbikun bílastæða og bætt ásýnd við Sandgerðiskirkju

-Ný rútustæði við Garðskaga

-Malbikun á bílastæði við golfskála Golfklúbbs Sandgerðis

-Skólasel og félagsmiðstöð Sandgerðisskóla flutt í húsnæði Sólborgar

-Nýtt gervigras lagt á sparkvelli grunnskólanna

-Umhverfi og ásýnd Reynisvallar bætt, m.a. með malbikun og nýrri girðingu

-Ný áhorfendastúka á Víðisvelli

-Frekari uppbygging Skerjahverfis

-Frekari uppbygging Klappa- og Teigahverfis

-Göngu- og hjólreiðastígar frá Sandgerði og Garði til Reykjanesbæjar og flugstöðvar

-Eftirlitsmyndavélar við innkomu í sveitarfélagið

-Útskálahús gert upp

Við í S-listanum, sem höfum setið í meirihluta ásamt O og D lista síðastliðin 2 ár, teljum okkur skila góðu búi til þeirra sem nú taka við. Ný bæjarstjórn hefur frábært tækifæri til að móta glæsta framtíð sveitarfélagsins. Ég óska öllum kjörnum fulltrúum velfarnaðar við sín störf á komandi kjörtímabili og að leiðarljós þeirra verði samvinna og sátt.   

Sigursveinn Bjarni Jónsson

Formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar