Hugleiðingar um leikskóla
Við sem Sveitarfélag höfum verið með frábæra skólaþjónustu síðustu ár með Suðurnesjabæ. Í þessu samstarfi höfum við rödd þar sem við erum hluti af heild og vorum með í að hanna og sníða þjónustuna sem virkar best fyrir okkur. Við höfum aldrei verið sáttari s.s. starfsfólk skóla og leikskóla með þessi mál eins og staðan er í dag.
Nú er stefnan að halda áfram samstarfi við skólaþjónustu Suðurnesjabæjar - sem er frábært, því þar er samtvinnuð þjónusta við félagsþjónustu og barnavernd. Hér geta allir stigið saman í takt og stutt markvisst við það sem þarf, þegar þess þarf. Stuttar boðleiðir og öflugt samstarf sem gefur af sér enn betri skólaþjónustu.
Okkar helstu vandamál sem við stöndum fyrir í dag er rými bæði í leik og grunnskóla Sveitarfélagsins auk mönnunarvanda, sem er landlægur.
Varðandi leikskólann þá er hann löngu sprunginn hvað varðar það rými og næði sem börn þurfa í daglegu amstri. Sérstaklega þegar viðvera barna er um 8 klst. eða rúmlega það að meðaltali. Áhugaverð rannsókn til meistaranáms sem Hörður Svavarsson gerði ber heitið „Börnin í veggjunum”. Hún lýsir því ástandi sem skapast hefur í leikskólum landsins. Að rými barna sé alls ekki nægilega mikið, hvort sem talað er um stór eða lítil rými þar eru iðulega of mörg börn. Það má líka nefna að rými starfsfólks þarf einnig að vera til staðar. Það má t.d. alveg horfa í langvarandi veikindi starfsfólks leikskóla með tilliti til þess. Álagið er oft gífurlegt. Þessu þarf að veita sérstaka athygli.
Samantekt af rannsókn Harðar sem unnin var fyrir KÍ má sjá hér meistararitgerðina og hér má nálgast rannsóknarniðurstöður fyrir KÍ.
Skoðum Heilsuleikskólann Suðurvelli nánar, eldra húsnæðið. Það var vel til þess fallið að sinna hlutverki sínu þegar það var byggt en er úrelt hvað varðar rými miða við núverandi rannsóknir og kröfur um rými, pláss og næði. Þegar brutto fermetrar og fleira er skoðað þá er einmitt gert ráð fyrir því að börn séu inni í veggju, á salernum, í geymslum o.frv. því allt rýmið er haft til hliðsjónar þegar pláss er reiknað.
Endurskoða þarf þá hugsun og horfa á þetta út frá því sjónarhorni að allir verða uppgefnir á að vera undir stanslausu áreiti allan daginn, það að geta ekki leitað í næði eða fengið rými til að vera í frið og ró hefur áhrif bæði á börn og fullorðna. Fullorðnir geta þó leitað í næði þ.e.a.s. skroppið að sækja sér kaffi, farið á salernið með lokaða hurð eða farið á kaffistofuna í kaffitíma. Það geta börnin ekki. Þau er alltaf á deildinni með börnum og starfsfólki, allan daginn.
Þegar kemur að því að hanna og byggja nýjan leikskóla þarf margt að hafa í huga. Þá þarf sérstaklega að huga að fjölda barna, samsetningu barnahópsins út frá þeim margbreytilegu þörfum sem þau hafa hverju sinni og hver fjöldi starfsmanna er út frá þörfum barna. En ekki horfa bara í barngildi og fermetra tölur á blaði, því barn er ekki sama og barn. Sama á við um starfsfólk. Huga þarf vel að aðstöðu starfsfólks. Að öllum líði eins og best verður á kosið og finni sig í rýminu.
Allir verða uppgefnir á því áreiti sem skapast ef ekki er hægt að hafa fámenna barnahópa, sinna þörfum þeirra sem þurfa frekar næði en aðrir. Það þarf að vera nægilegt rými til að geta verið með fámennari nemendahópa en svo mætti lengi telja hvað þarf að minna sig á þegar kemur að uppbyggingu á rými leikskólans.
Það má þó nefna að á tímum Covid varð að skipta leikskóladeildum upp og voru þá um helmingi færri börn á deildum, þá sáu starfsmenn mjög glögglega að úr varð yfirvegaðri leikur, líðan barna betri, meiri ró og í raun frekari tækifæri til öflugri tjáskipta en almennt skapast í stærri hópum.
Reiknivélin á vef KÍ er líka áhugaverð - þegar settur er inn fjöldi barna í árgangi neðarlega í reiknilíkaninu ásamt fjölda starfsmanna þá kemur fram hver æskilegur fermetrafjöldinn ætti að vera út frá því. Getur verið áhugavert og vekur fólk til umhugsunar hvað í raun þarf til að allir geti notið sín í leik og starfi - því við verðum margbreytilegri með hverju árinu, því við erum allskonar.
Hvað getum við gert með mönnun í skólum. Ýmsar hugmyndir hafa verið til skoðunar og nú nýlega var afsláttur á leikskólagjöldum leikskólakennara í Vogum innleiddur. E-listinn hefur fullan hug á að bæta aðstöðu barna og kennara. Með hönnun nýs leikskóla gefst gullið tækifæri á að skoða nýja hluti og gera breytingar sem styðja við alla. Við hlökkum til hönnunarvinnu nýs leikskóla þar sem allir þessir þættir sem að framan eru taldir eru teknir inn í stóra samhengið.
Tinna Magnúsdóttir
skipar 12. sæti E-listans - sérkennslustjóri í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum í Vogum
Linda Dögg Agnarsdóttir
skipar 8. sæti E-listans – leikskólaliði og nemi í leikskólafræðum






