Græn svæði og sjálfbærni eru lýðheilsumál
Við hjá Viðreisn viljum leggja aukna áherslu á umhverfismál, sjálfbærni og fegra ásýnd Reykjanesbæjar. Fallegt og vel hirt bæjarfélag verður ekki til af sjálfu sér, það byggist á ábyrgri stjórnsýslu, skýrri framtíðarsýn og virku samstarfi við bæjarbúa.
Við viljum hefja markvissa uppbyggingu grænna svæða, göngu/hjólaleiða og leggja aukna áherslu á að fegra bæinn. Eftir samtöl við deildir Reykjanesbæjar sjáum við skýr tækifæri til að leggja áherslu á uppbyggingu grænna svæða, leiksvæða og útivistarsvæða fyrir íbúa.
Við viljum sjá fleiri tré í Reykjanesbæ
Trjárækt og vel hönnuð, aðgengileg græn svæði bæta ekki aðeins ásýnd bæjarins heldur stuðla einnig að betri líkamlegri og andlegri heilsu. Slík svæði geta dregið úr streitu, aukið hreyfingu og bætt loftgæði (World Health Organization Regional Office for Europe, 2016).
Græn svæði þarf að byggja upp með langtímaframtíðarsýn að leiðarljósi. Það tekur tíma að rækta upp skóg og skapa skjólgóð útivistarsvæði, en reynslan sýnir að það er vel hægt. Þar má nefna Trúðaskóg og Njarðvíkurskóg sem góð dæmi um verkefni sem hafa vaxið og dafnað með árunum.
Við viljum horfa til framtíðar og sjáum fyrir okkur áframhaldandi skógrækt og þróun á svæðum eins og Rósaselstjörnum, með fjölbreyttari gönguleiðum og aukinni tengingu við náttúruna. Í Innri Njarðvík eru einnig fjölmörg svæði sem hægt væri að rækta upp til framtíðar, meðal annars græna svæðið fyrir aftan Stapaskóla og fleiri svæði víða um bæinn.
Samráð við bæjarbúa skiptir máli
Fallegt bæjarfélag skapast af fólkinu sem býr í því, stjórnsýslu sem forgangsraðar rétt og kjörnum fulltrúum sem eru tilbúnir að fjárfesta í umhverfi og lífsgæðum til framtíðar.
Við hjá Viðreisn leggjum ríka áherslu á samráð við bæjarbúa. Í Reykjanesbæ býr öflugt fólk sem vill leggja sitt af mörkum til að bæta nærumhverfið sitt hvort sem það er með trjárækt, plokki eða öðrum samfélagsverkefnum. Við viljum styðja við þann kraft og skapa fleiri tækifæri fyrir íbúa til þátttöku.
Sjálfbærari Reykjanesbær
Samhliða uppbyggingu grænna svæða er mikilvægt að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi í allri þróun bæjarins. Ný hverfi eiga að rísa með góðu aðgengi að útivist, gönguleiðum og grænum svæðum. Við megum ekki fórna grænum svæðum fyrir sífellt þéttari byggð. Þá er mikilvægt að hefja trjárækt og uppbyggingu gróðurs strax frá upphafi. Samhliða þessu viljum við leggja aukna áherslu á betri flokkun, meiri endurvinnslu og vistvænni lausnir í framkvæmdum og rekstri bæjarins.
Viðreisn vill vinna með bæjarbúum að því að skapa grænni, fallegri og sjálfbærari Reykjanesbæ, bæ þar sem heilsa og lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi.
Heimild
World Health Organization Regional Office for Europe. (2016). Urban green spaces and health: A review of evidence. WHO Regional Office for Europe. https://www.who.int/europe/publications/i/item/WHO-EURO-2016-3352-43111-60341
Ásta Kristín Guðmundsdóttir
Kennari, verkefnastjóri og markþjálfi
Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.







