Við erum öll tilbúin í þetta með ykkur!
Kæru íbúar Suðurnesjabæjar,
Ég vil byrja á því að þakka samtölin og heimsóknir til okkar síðustu daga og vikur í aðdraganda sveitarstjórnarkosninanna sem fram fara laugardaginn 16. maí. Við höfum átt góð og innihaldsrík samtöl við íbúa Suðurnesjabæjar, bæði vegna vinnu við málefnaskrá en ekki síst eftir að hún kom út. Það er okkur frambjóðendum ljóst að þau eru mörg málefnin sem brenna á íbúum, mörgu þarf að koma í verk fljótt, annað þarf að undirbúa og hefja vinnu við og enn öðru þarf að fylgja eftir. Lækka þarf álögur, bæta þarf starfsumhverfi í félagsstarfi aldraðra, koma þarf upp gervigrasvelli, vinna að lausnum í málefnum fatlaðra einstaklinga og lengi mætti telja.
Við á S-listanum höfum lofað ykkur að vera í áframhaldandi góðu samtali að kosningum loknum því það fylgir því mikil ábyrð að ráðstafa sameiginlegum fjármunum okkar og við viljum gera þetta saman.
Þegar ég ákvað að láta slag standa og taka sæti á lista sagðist ég vilja vera í öflugu liði þar sem raddir allra fá áheyrn og allir skipta máli. Ég hef komist að því að hvert einasta sæti S-listans er vel skipað og í hópnum býr mikil og einstök orka sem mun nýtast til frekari uppbyggingar fyrir Suðurnesjabæ. Þeir sem einhverntíman hafa verið í góðu og öflugu liði vita hvað ég er að tala um.
Það er okkur öllum hjarans mál að gera Suðurnesjabæ að öflugu samfélagi þar sem velferð allra skiptir máli. Við lögðum af stað í þessa vegferð með þetta að leiðarljósi og í samtölum okkar á málefnakvöldum, t.d um málefni fatlaðra einstaklinga, fólks af erlendum uppruna og í hádegissamveru með eldri borgurum, höfum við komist að því að við erum sannarlega á réttri leið og finnum að stór hluti íbúa Suðurnesjabæjar er sammála okkur.
Suðurnesjabær er ágætlega rekið sveitarfélag en við viljum gera betur. Mörgum er tíðrætt um hagræðingar, þar á meðal fulltrúum S-listans, en við viljum hagræða til að geta gert meira fyrir sama pening. Eftir að nýjasti ársreikningur sveitarfélagsins var samþykktur sjáum við einnig tækifæri og svigrúm til þess að gera meira. Við höfum talað um að vera hugrökk í ákvörðunartöku um framkvæmdir og þjónustuleiðir, t.d. þegar kemur að íþróttamannvirkjum og þjónustuleiðum fyrir barnafjölskyldur, fatlaða einstaklinga og eldri íbúa Suðurnesjabæjar. Við ætlum að vera hugrökk því stundum er hik sama og tap og bið getur þýtt meiri kostnaður þegar ákvörðun er „loksins“ tekin.
Málefnaskráin okkar er unnin í samstarfi og samvinnu við íbúa Suðurnesjabæjar og við á S-listanum ætlum að standa við okkar orð. Allt er þetta þó háð gengi okkar þann 16. maí næstkomandi. Það er mín ósk að geta fundið öllum í liðinu okkar frekara hlutverk eftir kosningar til að gera okkur kleift að fylgja þessum málum eftir. Ég á mér einnig draum um að Thelma Dís verði okkar fyrsti varamaður í bæjarstjórn og að Bára, Agnes og Jón Þór fái raunveruleg tækifæri til þess að kynnast því hvernig er að reka sveitarfélag í umboði íbúa.
Við höfum möguleika til þess að gera þetta saman, tryggja íbúum Suðurnesjabæjar betri lífsgæði og halda áfram að skapa tækifæri í Suðurnejsabæ.
Gerum þetta saman og setjum X við S á kjördag, 16. Maí.
Bergný Jóna Sævarsdóttir,
stjórnsýslufræðingur og verkefnastjóri skipar 2. sæti lista Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ









