Margir úr UMFN og Keflavík í yngri landsliðum - helmingur U16 stúlkna úr Keflavík
Nýlega var tilynnt um val í yngri landslið körfunnar og eiga Keflavík og Njarðvík leikmenn í flestum þeirra. Athylgi vekur að sex stúlkur úr Keflavík eru í tólf stúlkna hóp í U16 landsliðinu. Yngri landsliðin í körfubolta munu keppa á Norðurlandamóti og Evrópumóti í sumar.
Í U15 drengja er Hjörtur Páll Davíðsson úr Keflavík.
Í U15 stúlkna eru Njarðvíkingarnir Fanney Helga Grétarsdóttir, Harpa Rós Ívarsdóttir og Rósa Kristín Jónsdóttir.
Í U16 drengja eru þrír Keflvíkingar, þeir Arnar Freyr Elvarsson, Davíð Breki Antonsson og Sigurður Karl Guðnason.
Í U16 stúlkna eru: Björk Karlsdóttir, Elva Björg Ragnarsdóttir, HeiðrúnLind Sævarsdóttir, Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir og Oddný Hulda Einarsdóttir, allar úr Keflavík. Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir er sú sjöunda úr Reykjanesbæ en hún leikur með Njarðvík.
Í U18 kvenna eru þrjá stúlkur úr Njarðvík, þær Helga Jara Bjarnadóttir, Kristín Björk Guðjónsdóttir og Inga Lea Ingadóttir og ein úr Grindavík: Þórey Tea Þorleifsdóttir.
Í U20 kvenna eru Njarðvíkingarnir Hulda María Agnarsdóttir og Sara Björk Logadóttir en þær voru meðal lykilleikmanna í Íslandsmeistaraliði Njarðvíkur á síðasta tímabili.







