Kvennakór
Kvennakór

Íþróttir

Íslandsmótið í motocrossi hefst í Sólbrekku á morgun – Stórar breytingar og nýjungar
Föstudagur 12. júní 2026 kl. 17:37

Íslandsmótið í motocrossi hefst í Sólbrekku á morgun – Stórar breytingar og nýjungar

Á morgun, laugardaginn 13. júní, verður mikið um dýrðir í Sólbrekku undir Vogastapa þegar fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocrossi fer fram. Það er Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness (VÍR) sem heldur mótið, en búist er við hörkukeppni og mikilli spennu á einni flottustu motocrossbraut landsins.

Tímabilið hefst með nokkrum stórum skipulagsbreytingum sem keppendur og áhorfendur ættu að kynna sér. Í stað þess að keyra þrjú „moto“ (umferðir) á deginum verða þau aðeins tvö í ár, en á móti hafa umferðirnar verið lengdar sem mun reyna verulega á úthald ökumanna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Nýr „Hobbý-flokkur“ og sýning framtíðarstjarnanna

Helsta nýjung ársins er tilkoma svokallaðs Opinna Hobbý-flokks. Honum er ætlað að brúa bilið fyrir áhugafólk, en þar eru engar kvaðir um getu eða of mikinn hraða. Keppendur í hobbý-flokknum munu keyra tímatökur með bestu mönnum landsins í MX1 og MX2 flokkunum, en keyra svo sínar keppnisumferðir sér.

Sérstakt matarhlé hefst klukkan 13:10 og þá er áhorfendum rík ástæða til að halda sig við brautina. Þá verður nefnilega blásið til sérstakrar sýningar þar sem yngstu iðkendurnir, á 50cc og 65cc hjólum, munu sýna listir sínar og gefa innsýn inn í framtíð mótorsportsins á Íslandi.

Dagskrá dagsins:
  • Kl. 09:00: Tímatökur hefjast

  • Kl. 10:40: Keppni hefst formlega

  • Kl. 13:10: Matarhlé og sýning yngstu iðkenda (50cc og 65cc)

  • Kl. 16:03: Síðasta moto dagsins (konungsflokkarnir MX1/MX2)

  • Kl. 16:40: Verðlaunaafhending

Keppt verður í fjölmörgum flokkum, allt frá unglingaflokkum og 85cc upp í opinn kvennaflokk og hina sterku MX1 og MX2 flokka.

Að venju er magnað að fylgjast með tilþrifunum í Sólbrekkubrautinni og tilvalið fyrir Suðurnesjamenn og aðra mótorsportáhugamenn að leggja leið sína í Vogana á morgun og fylgjast með fyrstu stóru keppni sumarsins.

Viðburðarstjóri mótsins er Aron Ómarsson, öryggisfulltrúi er Júlíus Björnsson og brautarstjóri er Sigurður Örn Stefánsson.





Mikil vinna hefur verið lögð í brautina og aðstöðu á svæðinu síðustu daga og vikur.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar