HSS
HSS

Mannlíf

Sjóstangveiðimenn spiluðu gott mót í Grindavík
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 10:00

Sjóstangveiðimenn spiluðu gott mót í Grindavík

Sjóstangveiði er áhugamál sem iðkað er um heim allan og eru Íslendingar þar framarlega í flokki. EFSA sem stendur fyrir European Federation of Sea Anglers, er heitið á félaginu sem heldur utan um öll lönd Evrópu þar sem sjóstangveiði er iðkuð og er Ísland meðal meðlima. EFSA var stofnað árið 1961 og Íslandsdeildin var stofnuð sama ár. Formaður Íslandsdeildarinnar heitir Skarphéðinn Ásbjörnsson en á dögunum var haldið stangveiðimót í Grindavík. Alls mættu fjórtán keppendur til leiks, þar af fimm frá Suður Afríku en í fyrra fóru nokkrir Íslendingar þangað og kepptu, m.a. Skarphéðinn.
Skarphéðinn Ásbjörnsson

Skarphéðni og Íslendingunum gekk afar vel á Evrópumótinu sem haldið var í fyrra í Suður Afríku og hann var ánægður með hvernig til tókst í Grindavík í lok maí. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Gunnar Jónsson sem lék í Fóstbræðraþáttunum, var á meðal íslensku keppendanna.

„Við gerðum góða ferð til Suður Afríku í fyrra, unnum bæði liðakeppnina og ég varð Evrópumeistari einstaklinga í big game, sem snýst um að veiða stóra fiska. Evrópumótin eru oft haldin í löndum sem tilheyra ekki Evrópu, þar sem fengsæl fiskimið eru. Í Suður Afríku er mikið um túnfisk t.d. og það var ofboðslega gaman að koma þangað og veiða, skemmdi líka ekki fyrir hversu vel okkur gekk. Segja má að Suður Afríkumennirnir hafi borgað til baka því þeir unnu mótið í Grindavík. Það var keppt öðruvísi, gefin voru stig fyrir sjaldgæfar tegundir, það fæst minnst fyrir þorsk og ufsa, keilan t.d. gefur flest stig.

Kobus Koekemoer frá S-Afríku, með löngu sem mældist 156,5 cm.
Kobus með væna keilu en þá lengstu veiddi Íslandsmeistarinn Ægir Einarsson, 99 cm.

Það veiddust 648 fiskar sem náðu máli en fiskur þarf að vera að lágmarki 50 cm á lengd til að telja. 536 þorskar komu á land, 45 ufsar, 48 keilur og 19 löngur. Við keppum líka um hver veiðir lengsta fiskinn í hverri tegund og Suður Afríkumennirnir nánast einokuð þá keppni líka. Það má kannski segja að þeir hafi rúllað okkur upp eins og við rúlluðum þeim upp í fyrra. Sá sem var hlutskarpastur okkar Íslendinganna var Ægir Einarsson, hann er Íslandsmeistari 2025. Aflahæsti skipstjórinn var Jón Gauti Dagbjartsson á Grindjána GK-169.“

Hermann Ólafsson, oft kenndur við Stakkavík.
Hemmi í Stakkavík

Það hefði ekki verið hægt að halda þetta mót ef Hermann Ólafsson í Stakkavík hefði ekki lagt því lið.

„Ég verð að fá að minnast á Hemma í Stakkavík, hann skaffaði flesta bátana, hýsti mannskapinn, útvegaði beituna og svo var setning mótsins og glæsilegt lokahóf haldið í húsakynnum Stakkavíkur. Þar var auðvitað fiskmeti á boðstólnum og menn gerðu sér glaðan dag. Ég vil koma á framfæri kærum þökkum til Hermanns fyrir höfðingsskapinn en eins vil ég líka þakka öllum skipstjórunum, starfsfólki fiskmarkaðarins og þeirra sem elduðu matinn fyrir okkur.

Ég myndi segja að mótið hafi tekist mjög vel, það var reyndar bræla á föstudeginum en blíða hina dagana. Suður Afríkumennirnir voru himinlifandi og vilja endilega koma sem fyrst aftur til Íslands. Eins munum við heimsækja þá og aðrar þjóðir, það er mjög gaman að veiða t.d. í Suður Afríku, það eru svo margar framandi fisktegundir þar og allt öðruvísi umhverfi en við erum vanir hér á Íslandi,“ sagði Skarphéðinn að lokum.