Vísbendingar um að goshrina sé að fjara út
Á íbúafundi sem haldinn var í gær í Grindavík komu fram nýjustu upplýsingar um jarðhræringar á svæðinu. Grindavíkurbær og Grindavíkurnefnd stóðu fyrir fundinum sem var bæði vel sóttur og streymt á netinu. Þar ræddu helstu sérfræðingar landsins um þróun eldfjallavirkni og breytt hættumat innan bæjarins. Samantekt um fundin hefur verið birt á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands og er fréttin byggð á þeirri færslu.
„Kannski er þessi hrina að fjara út“
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, sagði að ýmis merki bentu til þess að núverandi goshrina gæti verið að nálgast endalok. „Hins vegar má ekki útiloka að a.m.k. eitt gos sé enn fram undan,“ sagði hann.
Benedikt G. Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, tók í sama streng og sagði að kvikuflæði virtist vera að minnka og skjálftavirkni hafi dregist saman. „Við erum aftur komin á stað þar sem við getum sagt: Kannski er þessi hrina að fjara út. En það er alltaf einhver óvissa.“
Nýtt hættumatskort kynnt
Sara Barsotti, eldfjallafræðingur hjá Veðurstofunni, kynnti nýtt hættumatskort sem sýnir breytta dreifingu hættu innan bæjarins. Hún sagði kortið byggja á nýjustu gögnum og að það yrði uppfært reglulega eftir því sem upplýsingar breytast. Barsotti lagði áherslu á að Veðurstofan fylgist stöðugt með þróuninni, allan sólarhringinn, með hjálp sjálfvirkra viðvörunarkerfa sem nema breytingar á skjálftum og kvikuhreyfingum.
Hættumat vs. áhættumat
Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, útskýrði muninn á hættumati og áhættumati – hugtök sem margir rugla saman. „Hættumat lýsir mögulegri hættu, en áhættumat metur líka líkurnar og áhrifin,“ sagði hún. „Það er þessi greining sem liggur til grundvallar viðbrögðum og aðgerðum.“
Hún lagði einnig áherslu á mikilvægi þess að miðlun upplýsinga sé skýr og að Veðurstofan vinni stöðugt að því að bæta sig í samtali við íbúa og vísindasamfélagið. „Við höfum ekki öll svör, en við gerum okkar besta í óvissu. Við hlustum á viðbrögð og reynum að miðla upplýsingum á sem skiljanlegastan hátt.“
Fjölmargar spurningar úr sal og gegnum samfélagsmiðla
Fulltrúar Veðurstofunnar og annarra stofnana svöruðu fjölmörgum spurningum frá íbúum, bæði úr sal og gegnum Facebook. Þar kom fram að íbúar vilja skýrari svör um stöðuna og framtíð Grindavíkur, og að traust og regluleg upplýsingagjöf skipti miklu máli í þeirri óvissu sem ríkt hefur síðustu mánuði.
Fundinum var streymt og hægt er að horfa á upptökuna á Facebooksíðu Grindavíkurbæjar.
Hvað er hættumat og áhættumat?
-
Hættumat sýnir hvar náttúruvá er fyrir hendi, t.d. sprungu- og eldgossvæði – óháð því hvort byggð sé á svæðinu.
-
Áhættumat metur hvort þessi vá hafi raunveruleg áhrif á fólk, byggð og innviði – og hversu alvarleg áhrifin gætu orðið.