HSS
HSS

Fréttir

Farið fram á rökstuðning vegna höfnunar á Garðskaga
Föstudagur 6. júní 2025 kl. 09:58

Farið fram á rökstuðning vegna höfnunar á Garðskaga

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar lýsir miklum vonbrigðum með að umsókn um styrk til nauðsynlegra framkvæmda á Garðskaga hafi enn á ný verið hafnað af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 28. maí og bókun þess efnis samþykkt samhljóða í bæjarstjórn.

Í bókun bæjarráðs kemur fram að umrædd umsókn hafi verið lögð fram í samstarfi við Reykjanes Jarðvang, en Garðskagi er samkvæmt mælingum næst fjölsóttasti ferðamannastaður á Suðurnesjum, einungis á eftir Bláa Lóninu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samþykkt var samhljóða að óska eftir rökstuðningi frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir þeirri ákvörðun að hafna umsókninni. Einnig var samþykkt að kallað verði eftir upplýsingum frá sjóðnum um framlög til Suðurnesja undanfarin ár og hvernig þau bera sig saman við framlög til annarra landsvæða.