Miðvikudagur 4. júní 2025 kl. 15:00

Heilbrigðisráðherra opnaði heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur opnað langþráða heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ.

Það var því hátíðleg stund þegar heilsugæslustöðin var formlega opnuð. Þá klipptu á borða þau Alma Möller heilbrigðisráðherra, Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS.

Aðdragandi að opnun stöðvarinnar er langur og hefur baráttan staðið í mörg ár. Það var svo síðasta haust sem skrifað var undir viljayfirlýsingu um opnun stöðvarinnar og þá var stefnan sett á sumarbyrjun 2025, sem stóðst.

Húsnæði stöðvarinnar hefur staðið ófrágengið í Vörðunni frá því sú bygging var reist á sínum tíma. Heilsugæsla hafði reyndar verið innréttuð í húsinu á sínum tíma en við efnahagshrunið 2008 var HSS gert að skera niður heilsugæslustöðvar og því var stöðin í Sandgerði ekki opnuð á í Vörðunni. Mun fyrr höfðu verið reknar heilsugæslustöðvar bæði í Garði og Sandgerði.

Stöðin er staðsett í Vörðunni í Sandgerði og verður opin tvo daga í viku í sumar. Þar verður veitt öll almenn heilsugæsluþjónustua. Þegar starfsemin hefur fengið að þróast og HSS sér hver eftirspurnin eftir þjónustu verður er ætlunin að endurmeta opnunartíma og bæta í.

Í spilara með fréttinni er viðtal við Andreu Klöru Hauksdóttur, deildarstjóra heilusugæslu hjá HSS, þar sem hún fer yfir þá þjónustu sem verður veitt í Suðurnesjabæ.

Opnun heilsugæslu í Suðurnesjabæ