Bygg
Bygg

Fréttir

Stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja slegin af
Föstudagur 6. júní 2025 kl. 10:27

Stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja slegin af

– verknámsskólar víðs vegar um landið hljóta sömu örlög

Áform um 1.900 fermetra stækkun á verk- og starfsnámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja hafa verið felld niður af ríkisstjórninni. Antons Guðmundsson, leiðtogi Framsóknar í Suðurnesjabæ vekur athygli á málinu og vísar í umfjöllun á vef Framsóknarflokksins.

Verkefnið, sem sveitarfélög á Suðurnesjum höfðu samið um í samstarfi við fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra Ásmund Einar Daðason, hefur nú verið stöðvað í kjölfar nýrrar fjáraukafrumvarps.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Anton segir þetta mikið högg fyrir landsbyggðina í færslu á samfélagsmiðlum.

„Verknámsskólarnir hafa verið slegnir af“

Á Alþingi í vikunni gagnrýndi Stefán Vagn Stefánsson, alþingismaður, harðlega þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Hann minnti á að mikil vinna hafi farið fram á síðasta kjörtímabili við að stækka verknámsskóla víða um land – meðal annars á Akureyri, Sauðárkróki, Ísafirði og í Reykjanesbæ.

„Nú er svo komið að um 800 til 1.000 einstaklingar sem vilja komast í verknám fá ekki inngöngu vegna þess að skólarnir eru sprungnir og hafa ekki rými,“ sagði Stefán Vagn. Hann lagði áherslu á að sveitarfélög hefðu þegar skuldbundið sig til að fjármagna 40% verkefnisins, og ríkið ætlaði að leggja til hin 60 prósentin – en fjármagninu hafi nú verið skipt út í fjáraukafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Spurt um skort á samráði

Stefán Vagn spurði einnig hvort samráð hefði átt sér stað við skólana eða sveitarfélögin sem höfðu gert ráð fyrir fjármögnun og framkvæmdaáætlunum á þessu ári. „Eftir því sem ég kemst næst er svarið nei – ekkert samráð,“ sagði hann.

Hann lauk máli sínu með skýrum orðum: „Verknámsskólarnir hafa verið slegnir af. Þetta er ekki forgangsmál hjá þessari ríkisstjórn.“