HSS
HSS

Fréttir

Gervigrasvöllur verður á aðalvelli Reynis
Knattspyrnuvöllurinn í Sandgerði. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 6. júní 2025 kl. 10:11

Gervigrasvöllur verður á aðalvelli Reynis

– uppbygging fer í gang að nýju

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að hefja á ný vinnu við hönnun og kostnaðargreiningu vegna gervigrasvallar á aðalvelli Reynis í Sandgerði. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs þann 28. maí, þar sem tillaga meirihluta D-, O- og S-lista var samþykkt samhljóða. Fundargerð bæjarráðs var svo tekin fyrir í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar í vikunni og staðfest.

Ákvörðunin byggir á því að tillaga um stofnun nýs íþróttafélags í Suðurnesjabæ var felld á aðalfundum knattspyrnufélaganna Reynis og Víðis þann 12. maí síðastliðinn. Með þeirri niðurstöðu öðlast fyrri ákvörðun meirihlutans, sem kveður á um uppbyggingu vallarins í samræmi við málefnasamning, gildi að nýju.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samningar og samstarf við félögin Reyni og Víði

Íþrótta- og tómstundafulltrúa Suðurnesjabæjar verður falið að vinna að samningum við félögin Reyni og Víði um afnot af gervigrasvellinum. Þá mun skipulags- og umhverfissvið bæjarins meta kostnað við gerð nýrrar stúku og uppsetningu á vökvunarkerfi við aðalvöll Víðis í Garði. Einnig verður unnið að bætingu æfingaaðstöðu fyrir yngri flokka þar í samstarfi við knattspyrnufélagið, eins og fram kemur í málefnasamningi.

Erindi liggja fyrir

Fyrir liggur einnig erindi frá Knattspyrnufélaginu Víði og barna- og unglingaráði Reynis og Víðis þar sem óskað er eftir skýrri staðsetningu fyrirhugaðs gervigrasvallar.

Afgreiðsla bæjarráðs var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn.

Knattspynuvöllurinn í Garði.