Bundið slitlag á Grindavíkurveg
Vegagerðin hyggst leggja bundið slitlag á Grindavíkurveg í næstu viku, nánar tiltekið á kaflann þar sem nú er möl. Framkvæmdirnar hefjast þriðjudaginn 10. júní og er stefnt að því að þeim ljúki fimmtudaginn 12. júní, að því gefnu að veður og aðstæður leyfi.
Ekki verður lokað fyrir umferð á meðan framkvæmdum stendur, en henni verður stýrt með merkingum. Ökumenn eru beðnir um að sýna tillitssemi og aka varlega um framkvæmdasvæðið.