Bygg
Bygg

Mannlíf

Fullt út úr dyrum á birgjadegi Ísland Duty Free
Föstudagur 6. júní 2025 kl. 09:42

Fullt út úr dyrum á birgjadegi Ísland Duty Free

Í vikunni hélt ÍSLAND Duty Free svokallaðan birgjadag á Courtyard by Marriott hótelinu í Keflavík þar sem innlendir framleiðendur kynntu vörur sínar fyrir starfsmönnum Ísland Duty Free.

Fjöldi innlendra birgja tók þátt í viðburðinum og skapaðist skemmtilegt stemning.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Viðburðurinn markaði upphaf nýs kafla í rekstri fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli, þar sem Heinemann tók nýverið við rekstrinum undir nýju vörumerki, Ísland Duty Free.

Frank Hansen, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free, segir að fjöldi íslenskra birgja sem tóku þátt í deginum hafi farið fram úr björtustu vonum og að hann finni fyrir miklum áhuga í garð Ísland Duty Free meðal þeirra.

„Við höfum lagt sérstaka áherslu á að styrkja tengsl okkar við innlenda framleiðendur og tryggja framboð af fjölbreyttum íslenskum vörumerkjum. Við erum eru rétt að byrja okkar rekstur hér og okkar metnaður stendur til þess að auka enn frekar framboð af íslenskum vörum þannig að það verði að lágmarki 30% af okkar vöruframboði. Við viljum gera íslenskum vörum hátt undir höfði í verslunum okkar hér í Keflavík og jafnvel í verslunum okkar á öðrum mörkuðum þegar fram í sækir.“