Einar Jón forseti og Magnús fær áheyrn í sumar
Á fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar í vikunni fóru fram formlegar kosningar í helstu embætti sveitarfélagsins. Einar Jón Pálsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs með atkvæðum D-, O- og S-lista. Fulltrúar B-lista og Magnús Sigfús Magnússon sátu hjá við þá atkvæðagreiðslu.
Einnig voru kjörnir varaforsetar bæjarstjórnar. Jónína Magnúsdóttir var samþykkt sem 1. varaforseti og Anton Kristinn Guðmundsson sem 2. varaforseti, einnig með stuðningi D-, O- og S-lista. Fulltrúar B-lista og Magnús Sigfús sátu hjá.
Breytt skipan í bæjarráði
Kosning í bæjarráð fór einnig fram og voru þrjár tillögur lagðar fram. Tillaga D-, O- og S-lista hlaut meirihluta með sex atkvæðum og voru eftirtaldir aðalmenn og varamenn kjörnir í bæjarráð til eins árs:
Aðalmenn:
Sigursveinn Bjarni Jónsson (formaður)
Laufey Erlendsdóttir (varaformaður)
Anton Kristinn Guðmundsson
Varamenn:
Önundur Björnsson
Jónína Magnúsdóttir
Úrsúla María Guðjónsdóttir
Tillaga B-lista hlaut tvö atkvæði og tillaga Magnúsar Sigfúsar eitt atkvæði.
Magnús Sigfús Magnússon óskaði eftir að fá áheyrnaraðild í bæjarráði en sú beiðni var felld með atkvæðum meirihlutans. Hins vegar samþykkti bæjarstjórn samhljóða tillögu þess efnis að Magnús verði áheyrnarfulltrúi í bæjarráði á meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi og bæjarráð fer með fullnaðarafgreiðslu mála.