Ljósin í Grindavík
Um síðustu helgi, á sjómannadaginn sjálfan, upplifði ég einstaka samheldni og sóknarhug í Grindavík. Þrátt fyrir áframhaldandi óvissu vegna jarðhræringa stendur samfélagið sterkt, en það þarf áfram stuðning til að varðveita vonina, efla sóknina og tryggja að ljósin logi um ókomna tíð í bænum.
Blómlegt samfélag byggt á fjölbreytni í atvinnulífi
Í Grindavík átti ég samtal við smið sem rekur litla hönnunarverslun. Ég varð orðlaus yfir þeirri nýsköpun og þeim metnaði sem hann sýndi og það vakti mig til umhugsunar um hvernig blómlegt samfélag verður til. Grindavík hefur einmitt verið dæmi um samfélag sem byggist bæði á viljasterkum íbúum og fjölbreyttum fyrirtækjum. Þannig verður það að vera áfram.
Fyrirtæki með Svarta-Pétur vegna náttúruhamfara
Nú eru það þessi fyrirtæki, hornsteinar samfélagsins, sem standa áfram frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þetta eru fyrirtækin sem hafa gert svo mikið fyrir sitt samfélag en þau sitja nú uppi með Svarta-Pétur, ekki vegna óráðsíu í rekstri heldur vegna náttúruhamfara. Erfið staða fyrirtækja bætist ofan á óvissu fjölskyldna sem hafa fallið milli skips og bryggju í húsnæðislausnum og þurfa frekari lausn sinna mála.
Fyrir fyrirtækin er sú niðurstaða að rekstrarstuðningur vegna tekjufalls hafi endað í mars síðastliðnum mikið áfall. Í stað þess að breyta úrfærslu eða framlengja sambærileg úrræði á nú að ýta fyrirtækjum út í frekari lántökur og hvetja þau til að fá sér ráðgjöf í gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja.
Skýr stuðningur – ekki auknar skuldir
Það sem þessi fyrirtæki þurfa er hvorki aukin skuldsetning eða frekari ráðgjöf. Þau þurfa áframhaldandi rekstrarstuðning, og umfram allt möguleika og svigrúm til að hjálpa sér sjálfum á eigin forsendum. Það er þessi kraftur sem þarf að hlúa að til að Grindavík verði aftur samfélag í blóma.
Áskorun til fjármálaráðherra
Ég skora á fjármálaráðherra að standa áfram með Grindvíkingum og finna lausn fyrir fjölskyldurnar og fyrirtækin sem eiga allt undir og eru lykillinn að því að öll ljós geti logað í Grindavík á ný.
Halla Hrund Logadóttir,
þingmaður Framsóknar
Greinin er byggð á ræðu flutt á Alþingi hinn 3. júní sl.