Fimmtudagur 5. júní 2025 kl. 10:51

Heillaspor Stapaskóla verðlaunað

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar voru afhent miðvikudaginn 4. júní.

Tólf tilnefningar bárust til menntaráðs. Um var að ræða sjö verkefni frá grunnskólum í Reykjanesbæ og fimm frá leikskólum.

Tvö verkefni fengu sérstaka viðurkenningu. Það voru Nýsköpunar- og tæknimennt við Háaleitisskóla og Félagsfærni sem hittir í mark við Heiðarskóla.

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar fóru svo til Stapaskóla að þessu sinni. Þar var verkefnið Heillaspor, verkefni til að efla vellíðan og tilfinningalegt öryggi í skólastarfi, sem hlaut verðlaun ráðsins að þessu sinni.

Stapaskóli hefur síðustu tvö skólaár unnið markvisst að innleiðingu verkefnisins með það að leiðarljósi að styrkja félagslega og tilfinningalega velferð nemenda.

Á undan dagskránni undirrituðu skólastjórnendur í Reykjanesbæ samninga vegna styrkúthlutunar úr Nýsköpunar- og þróunarsjóði menntasviðs fyrir næsta skólaár.