Bygg
Bygg

Fréttir

Vinnumálastofnun segir upp samningi við Reykjanesbæ
Laugardagur 7. júní 2025 kl. 13:14

Vinnumálastofnun segir upp samningi við Reykjanesbæ

Rúmlega 20 ára þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd lýkur 1. ágúst

Vinnumálastofnun hefur sagt upp samningi sínum við Reykjanesbæ um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Uppsögnin tekur gildi 1. ágúst 2025 og stofnunin mun taka yfir þjónustuna í síðasta lagi 31. júlí. Þetta kom fram á 444. fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 5. júní síðastliðinn.

Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis hjá bænum, fór yfir áhrif uppsagnarinnar á starfsemi velferðarsviðsins og kom þar fram að um væri að ræða veruleg áhrif á mannauð og fjárhagsáætlun ársins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Reykjanesbær leiðandi í málaflokknum frá 2004

Velferðarráð lagði áherslu á að Reykjanesbær hafi verið í fararbroddi í þessum málaflokki á landsvísu allt frá árinu 2004 og sinnt mikilvægu hlutverki í þjónustu við umsækjendur um vernd. Ráðið vill koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu starfsmanna sem staðið hafa vaktina í þessu þarfa og mannúðlega verkefni.

Ófyrirséð fjárhagslegt áhrif

Ljóst er að uppsögnin hefur ófyrirséð áhrif á fjármál bæjarins. Ekki var gert ráð fyrir þessari breytingu í fjárhagsáætlun ársins 2025 og gerir velferðarsvið ráð fyrir að halli vegna verkefnisins gæti numið 15–20 milljónum króna á þessu ári.