Bygg
Bygg

Mannlíf

Grindvískir sjómenn heiðraðir í Grindavíkurkirkju á Sjómannadaginn
Frá vinstri: Sævar Sigurhansson, Sigurður Óli Sigurðsson, Björn Oddgeirsson, Benóný Þórhallson, Ólafur Þór Þorgeirsson og formaður SVG, Einar Hannes Harðarson.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 13:10

Grindvískir sjómenn heiðraðir í Grindavíkurkirkju á Sjómannadaginn

Grindavíkurkirkja var þétt setin á sunnudag, sjálfan sjómannadaginn en þá fór sjómannamessa fram á ný og voru fimm sjómenn heiðraðir. Fyrrverandi forsetafrú, frú Eliza Reid, flutti hátíðarræðu, óperusöngvarinn Gissur Páll Gissurarson söng einsöng og kirkjukór Grindavíkurkirkju söng undir öruggri stjórn kórstjórans og orgelleikarans Kristjáns Hrannar Pálssonar. Að messu lokinni var gengið að missisvarða um drukknaða sjómenn og lagður blómsveigur, þaðan var stutt á Sjómannastofuna Vör þar sem boðið var upp á kaffi og snittur.

Sjómennirnir sem voru heiðraðir eru þessir:

Benóný Þórhallsson, Sigurður Óli Sigurðsson, Ólafur Þór Þorgeirsson og Sævar Sigurhansson. Vélstjórinn Björn Oddgeirsson hlaut Neistann

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nánar um hvern og einn

Benóný Þórhallsson, vélstjóri og útgerðarmaður

Benóný eða Binni eins og hann er oft kallaður, fæddist 24.janúar 1952 í heimahúsi, Baldurshaga, sem foreldrar hans byggðu við Suðurgötu 1 í Sandgerði.

Eiginkona Benónýs var Svava Jónsdóttir, fædd 21. mars 1952 en hún lést árið 2019. Þau giftu sig 11.desember 1971. Þau eignuðust þrjú börn; Þórhallur Ágúst fæddur 1971, Sigríður Fjóla fædd 1974 og Berglind fædd 1982. Barnabörnin eru átta og barnabarnabörnin eru orðin sex. 

Benóný gekk í skóla í Sandgerði og lauk þar gagnfræðiprófi og síðar lýkur hann 2. stigi í vélstjórn frá Vélskóla Íslands.  

Binni eins og hann er alltaf kallaður fór oft á sjóinn með pabba sínum, Þórhalli Gíslasyni eða Dúdda Gísla eins og hann var jafnan kallaður, á Hamri GK en fyrsta lögskráningin hans var á Freyju GK árið 1965, þá aðeins 13 ára gamall. Síðar fór hann á Álaborg 1966 með pabba sínum. 

Árið 1968 -1969 var hann á Guðmundi Þórðar GK. 

Hann vann í Stálvík 1970 við smíði á Arnfirðingi II GK. Hann fór á flot í janúar 1971 og var Benóný vélstjóri. Arnfirðingur II strandaði í innsiglingunni í Grindavík í desember 1971. Öllum ellefu skipsverjum var bjargað með fluglínutækjum af Björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík.

Binni var vélstjóri á Gylfa Erni árin 1972-1973. 

Árin 1973-1976 var hann vélstjóri á Grímseygingi GK. Árið 1976 keyptu þeir Benóný og Reynir Jóhannsson, Grímseying og skírðu hann Víkurberg og gerðu hann út til ársins 1980. Þá keyptu þeir Stapavíkina og nefndu Víkurberg. Benóný og Reynir voru saman í útgerð til ársins 1998 lengst af gerðu þeir út á nótaveiðar síld og loðnu. 

Benóný og Svava stofna smábátútgerðina Besa ehf, haustið 1998. Þau létu smíða Dúdda Gísla og var fyrsti róður 24.janúar 1999. Janúar 2000 keypti Besa ehf Sigga Bjarna og nefndu Gísla Einars. Besa ehf gerði út tvo báta samtímis til ársins 2004. Nýsmíði af Dúdda Gísla var 2005. Þrír af bátum Besa ehf hafa verið nýsmíði. Besa ehf byggði Bakklág 17b árið 2010 og var það sannkallað fjölskyldufyrirtæki þar sem Benóný, Svava og börnin þeirra þrjú unnu öll saman í fiskvinnslunni. 

Enn þann dag í dag er Binni í útgerð með fjölskyldunni og gera þau út Dúdda Gísla GK frá Grindavík.

Benóný er nú búsettur að Silfursmára 2 í Kópavogi og unir þar hag sínum vel.

Binni ásamt Þóru systur sinni.

Ólafur Þór Þorgeirsson, vélstjóri.

Ólafur er fæddur þann 23 febrúar 1950 á Grásíðu í Kelduhverfi norður Þingeyjarsýslu.

Foreldrar Ólafs voru þau Þorgeir Þórarinnson bóndi á Grásíðu og Ragnheiður Ólafsdóttir húsfreyja á Grásíðu.

Eiginkona Ólafs var Stefanía Björg Einarsdóttir, hún er látin.

Börn þeirra eru Hjalti Pálmason en hann lést árið 1986, Jón Þ.Dagbjartsson, Ragnheiður Þóra og Petra Rós. Barnabörnin eru fimmtán og langafabörnin eru orðin sex.

Ólafur er uppalin í Kelduhverfi og gekk þar í skóla, hann útskrifaðist sem gagnfræðingur frá Laugum í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu vorið 1966, hann dvaldi næstu árin á Grásíðu og vann tilfallandi störf í Kelduhverfinu.

Um tvítugt lagði hann land undir fót og var kominn til Grindavíkur í skipsrúm í lok desember 1970.

Hann byrjaði sem háseti á Ársæli Sigurðssyni GK 320 frá Grindavík, varð síðar vélstjóri og var á Ársæli til ársins 1977.

Festi hf., útgerð Ársæls seldi skipið og keypti Þórshamar GK-75, Ólafur fór yfir og var þar samfellt til ársins 1985.

Á sjómannsárum var Ólafur ötull félagsmaður í Sjómanna og vélastjórafélagi Grindavíkur og á drjúgan þátt í byggingu Sjómannastofunnar Vör, félagsheimilis sjómanna í Grindavík.

Hann varð verkstjóri hjá þorbirni hf. árið 1986 og svo tóku við nokkur ár í sjálfstæðum rekstri, Ólafur hóf störf hjá Veiðarfæraþjónustunni hf. rétt fyrir aldamótin og var þar samfellt næstu tuttugu árin og lauk þar sinni starfsævi.

Óli og Björg byggðu sér hús á Selsvöllum 7 í Grindavík og bjuggu þar lenst af, núna býr Ólafur að Njarðarvöllum 8 í Ytri Njarðvík og nýtur þar efri áranna.

Ólafur ásamt Ragnheiði dóttur sinni og tengdasyninum Rúnari Sigurjónssyni.
Sigurður Óli Sigurðsson, skipstjóri.

Sigurður Óli er fæddur þann 21 júní 1948 á bænum Götu í Rangárvallarsýslu.

Hann er sonur hjónanna Sigurðar Ólafssonar bónda í Götu og Gerðu Hammer frá Önundarfirði.

Fyrverandi eiginkona var Ragnheiður Árný Magnúsdóttir en hún er látin.

Börn þeirra eru Júlíus Magnús , Gerða Kristín og Svanhvít Helga.

Óli er uppalinn á bænum Götu fram að 14 ára aldri, hann lauk gangnfræðiprófi frá Laugarlandsskóla í Holtum og síðar 30 tonna réttindum frá Stýrimannaskólanmum í Reykjavík.

Fjölskyldan flutti til Grindavíkur 1961 og settist að á Valdastöðum og ekki leið á löngu þar til að Óli var farinn að vinna, hann var eina vertíð í Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða og á sautjánda ári var hann kominn á sjóinn.

Hann var háseti hjá Magnúsi á Brú á Sigurvon GK 206.

Við tóku nokkur ár í sjómennsku á ýmsum bátum, Óli var með Geira í Selvogi á Farsæl GK, með Willard á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK á línu og netum. Næst var hann í sex ár á Mána GK-63.

Hann fór túr á togara og var á stóru vertíðarbátunum, ýmist á síld eða loðnu í nokkur ár eftir það.

1974 var Óli kominn á Má GK 55 og var þar næstu átta árin, frá 1983 og til ársins 1997 var Óli með marga báta, m.a. fyrir Stakkavík, hf og réri á Hörpu GK, Bjarna KE og endaði svo sjómennskuna á Geir Goða GK árið 1997.

Þegar í land var komið var Óli hjá Fiskmarkaði Suðurnesja þar til að hann flutti til Hornafjarðar, vann þar hjá Skinney Þinganes til ársloka 2015 og lauk þar með sinni starfsævi.

Sigurður Óli var búsettur að Hópi í Grindavík þegar að til rýmingar kom, núna er hann búsettur að Austurhólum 2 á Selfossi og nýtur þar efri áranna.

Sigurður Ólafur til vinstri, og Ólafur Sigurðsson.
Sævar Sigurhansson, matsveinn.

Sævar er fæddur þann 6. Nóvember 1954 í Reykjavík.

Hann er sonur hjónanna Sigurhans Hjartarsonar frá Hellisandi og Helgu Guðmundsdóttur úr Hrunamannahreppi.

Eiginkona Sævars er Ólöf Jónsdóttir. Sævar á þrjár dætur, þær Margréti , Birnu Rún og Þórný Helgu.

Sævar sleit barnsskónum í Reykjavík, gekk þar m.a. í Laugarlækjaskóla en lauk gagnfræðiprófi frá Austurbæjarskóla.

Hann var kominn í Iðnskóla Hafnafjarðar og lauk þaðan  sveinsprófi í rafsuðu. Við tók vinna við fagið, hann var kominn á samning í Bátalóni, var um skeið í skipasmíðastöðinni Stálvík og einnig í Njarðvíkurslipp.

Svo lá leiðin á sjóinn en Sævar fór til Vestmannaeyja á vertíð 1979 og var  á Gandí VE 171 næstu árin, leiðin lá svo til Grindavíkur og var hann á Þorsteini GK-16 með Gunnari Gunnlaugssyni tvær vertíðar, 1981og 1982.

Á þessum árum var mikil nótaveiði og var hann á Suðurey VE á síld ’83. 1984 var Sævar kominn á Höfrung 2-GK með Þórði Pálmasyni og var matsveinn þar til 1995, þeir félagar fóru saman yfir á Hrungni GK-50 og voru þar til ársins 2006.

Þarna var Sævar komin til Vísis hf. og réri Sævar samtals í 26 ár hjá fyrirtækinu. Frá árunum 2006 til 2021 var Sævar á Jóhönnu Gísladóttur GK-57 og lauk svo sjómannsferli sínum vertíðina 2021 á Sighvati GK. 

Sævar og Ólöf búa í Kórsölum 5 í Kópavogi og njóta þar erfri áranna.

Björn Oddgeirsson, vélstjóri

Björn Oddgeirsson yfirvélstjóri á Tómasi Þorvaldssyni GK 10, hlýtur Neistann sem er viðurkenning fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf.

Björn er fæddur þann 11. desember 1964 í Keflavík. Foreldrar hans eru þau Oddgeir Björnsson og Fanney Sæmundsdóttir. 

Björn er kvæntur Sigrúnu Haraldsdóttir og eiga þau tvær dætur, þær Elfu og Bertu.

Björn lauk 4. stigi Vélskóla Íslands árið 1988 og sveinsprófi í vélvirkjun árið 1989.

Björn starfaði sem vélstjóri á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255 frá 1990 til 2019, þar af sem yfirvélstjóri frá árinu 1999. Frá árinu 2019 hefur Björn verið yfirvélstjóri á Tómasi Þorvaldssyni.

TM Tryggingar hf. og VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, veita nú í þrítugasta og annað sinn, viðurkenningu fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf. Gripurinn sem veittur er hefur hlotið nafnið „Neistinn.˝

Við val á viðtakanda skal meðal annars leggja til grundvallar ástand skoðunarskylds vélbúnaðar um borð, ástand öryggis-og viðvörunarbúnaðar, rekstur á vélbúnaði skipsins og umgengni í vélarúmum.

Leitað var umsagnar skoðunarstofa og flokkunarfélaga en á milli 80-90% af öllum skoðunarskyldum búnaði um borð er á ábyrgðarsviði yfirvélstjórans. Yfirvélstjórinn er einnig sá eini í áhöfninni sem getur fengið heimild flokkunarfélaga til þess að ljúka fullnaðarskoðun á tilgreindum skipsbúnaði án þess að kvaddur sé til fulltrúi frá flokkunarfélagi.

Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja athygli á hversu þýðingarmikið og krefjandi starf yfirvélstjórans er og um leið að veita þeim sem skara fram úr, viðurkenningu fyrir fyrirmyndarstörf.

Binni á milli dætra sinna og dóttursyni, ásamt hjónunum Sólveigu Ólafsdóttur og Eiríki Dagbjartssyni.