Þjóðin getur andað léttar, það er von!
Bræðurnir Einar, Eiríkur og Jón Gauti Dagbjartssynir, hafa skipt stórútgerðinni Grindjána ehf. upp í tvær og hefur fyrirtækið Fyrir þjóðina ehf. bæst í flóruna.
Einar og Jón Gauti munu berjast um stjórnartaumana í Fyrir þjóðina ehf. og gera út bátinn Grindjána GK-169 en Eiríkur mun reka Grindjána ehf. en fara aftur í ræturnar og róa á Ólafi GK-133.
Gauti „the grease monkey“
Einar sem nýlega hefur látið af störfum sem flugstjóri hjá Icelandair sökum aldurs, er alsæll að geta helgað líf sitt sjómennskunni og er sannfærður um að hafa betur í baráttunni um stjórnartaumana í Fyrir þjóðina ehf. þar sem hann er fyrirmynd fjölskyldunnar.
„Jónsi bróðir verður að gera sér grein fyrir hvor er eldri og fallegri. Annars hef ég fulla trú á að samstarfið muni ganga vel hjá okkur en þannig gekk það öll þessi ár á meðan Eiríkur var með okkur í útgerðinni á Grindjána GK-169. Ég lét þá sjá um allt viðhald á bátnum, við flugstjórarnir erum ekkert að skíta okkur út í slíkum verkum og mun ekki verða nein breyting hjá okkur Jónsa í þeim efnum, ég mun láta hann um öll skítverkin og hef gert hann að yfir-„grease monkey“ Fyrir þjóðina ehf., ég mun sjálfur mæta prúðbúinn með skjalatöskuna á þá fundi sem þarf að mæta á. Þetta strandveiðitímabil fer vel af stað hjá okkur, við erum kátir með gang mála og ætlum okkur að standa okkur fyrir þjóðina,“ sagði Einar.

Trommukjuðarnir upp í hillu
Jón Gauti er oft kallaður „vinurinn við veginn“ en hann hefur séð um rekstur Olís í Grindavík til fjölda ára. Gauti er mikill stuðningsmaður grindvískra íþrótta og um tíma lamdi hann húðir í Bítlabandinu The BackstaBBing Beatles.
„Mér líst svo sem vel á þetta fyrirkomulag, Eiríkur bróðir vildi hella sér af fullum krafti út í smábátaútgerðina og þess vegna var rökrétt að skipta þessu svona upp en við munum áfram vinna hlutina saman. Þetta hefur gengið vonum framar til þessa og er gaman að vera saman á tveimur bátum að elta þann gula.
Já, ég var og er trommuleikari en lítið hefur farið fyrir trumbuslætti að undanförnu, The BackstaBBing Beatles er í pásu en hljómsveit á aldrei að segjast vera hætt, asnalegt að koma með endalaus comeback! Ef við ýtum skipinu aftur úr vör er ég nú svo sem smeykur um að þessi dieselvél verði lengi í gang en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Mig grunar hins vegar að þessum kafla í mínu lífi sé lokið en ég náði svo sem alla leið á toppinn, við spiluðum jú á Þjóðhátíð Vestmanneyinga,“ segir Jón Gauti.
Aftur í ræturnar eftir giftusamlegan útgerðarstjórnarferil
Eiríkur á minningar af sér sem sex til sjö ára gömlum gutta í Grímsey á sjó með afa sínum eða frændum. Hann vissi alltaf hvaða slóð hann myndi feta, það kom aldrei neitt annað til greina en sjómennska en undanfarin 25 ár var sjómennska ekki hans aðalstarf en þá var gott að geta verið með bræðrum sínum í útgerð á Grindjána. Breytingar urðu svo hjá Þorbirni hf. þar sem hann var útgerðarstjóri og hann nýtti tækifærið og hellti sér á ný af fullum krafti í sjómennskuna.
„Það var aldrei nokkur einasta spurning við hvað ég myndi vinna þegar ég var yngri, ég sá ekkert nema sjómennskuna. Menntaði mig nánast um leið og ég gat, var stýrimaður og svo skipstjóri og réri á Ólafi GK-33 fyrir Fiskanes hf. þar til hann var seldur við sameiningu Fiskaness við Þorbjörn hf. og Valdimar í Vogum. Þá bauðst mér að gerast útgerðarstjóri og skal alveg viðurkennt hér og nú að fyrstu dagana í því starfi var ég eins og þorskur á þurru landi, eða strandaður hvalur, ég vissi ekkert hvað ég var að gera! Þetta lærðist svo og ég kunni mjög vel við mig hjá Þorbirni og sá um frystitogarana. Svo urðu breytingar hjá eigendum Þorbjarnar og ég ákvað að nýta tækifærið og hella mér af fullum krafti í smábátaútgerðina. Við bræðurnir unnum þetta einkar vel saman á meðan við áttum allir Grindjána og við munum halda áfram að vinna hlutina saman þótt við séum á sitthvorum bátnum. Þetta eru alveg eins bátar, Sómi 860 og hefur verið gaman að vera á veiðum hlið við hlið. Mér finnst líka ofboðslega skemmtilegt að hinn afi sona Telmu minnar og Sævars, Einar Þórarinn Magnússon, sé líka snúinn til baka á Ósk sinni, KE 5. Afadrengirnir okkar sem heita eftir okkur, eru nánast glaðari en við með þetta og eru nánast búnir að ráða sig sem útgerðarstjóra hjá okkur öfunum,“ sagði Eiríkur að lokum.








