Eldgos geti hafist hvenær sem er
Mælingar á jarðskorpuhreyfingum sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og undanfarið. Samkvæmt líkanreikningum hafa um 8–9 milljónir rúmmetra kviku safnast saman frá síðasta eldgosi sem hófst 16. júlí. Talið er að á því tímabili hafi um 12 milljónir rúmmetra kviku runnið úr söfnunarsvæðinu.
Líkur á nýju gosi
Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir og rann út í síðasta gosi. Ef söfnunarhraðinn helst óbreyttur er talið að því marki verði náð í seinni hluta september. Þetta kom einnig fram í síðustu uppfærslu hættumatskorts.
Reynslan sýnir þó að mörkin á því hvenær eldgos hefst eru ekki nákvæm. Í sumum tilfellum hefur gos hafist áður en jafn mikið magn safnast, í öðrum tilfellum síðar. Því er gert ráð fyrir að eldgos geti hafist hvenær sem er, jafnvel þótt kvikusöfnun sé enn undir 12 milljónum rúmmetra.
Hættumat óbreytt
Hættumatskort verður óbreytt að sinni en verður endurskoðað í næstu viku, þegar búist er við að sama magn kviku og í síðasta gosi hafi safnast fyrir. Kortið er því í gildi frá 16. til 23. september, segir á vef Veðurstofu Íslands.