Aðsent

Útlendingamál í ólestri
Föstudagur 23. febrúar 2024 kl. 06:00

Útlendingamál í ólestri

Það hefur lengi verið vitað að útlendingamálin í Reykjanesbæ eru í algjörum ólestri. Samkvæmt nýjustu tölum, sem komu fram vegna fyrirspurnar minnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, kemur í ljós að í Reykjanesbæ dvelja samtals 1.383 hælisleitendur og flóttamenn. Reykjanesbær hefur verið í fremstu víglínu í þessum málaflokki og hreinlega óboðlegt að leggja slíkar byrðar á eitt bæjarfélag.

Nú hefur Samfylkingin áttað sig á því að fjöldi innflytjenda hefur farið úr 10% af mannfjölda í 20% á sex, sjö árum og er nú fimmtungur landsmanna. Sami flokkur sem hefur verið í fararbroddi fyrir því að hleypa öllum inn í landið er nú farinn að hafa áhyggjur. En það er auðvitað engin stefnubreyting hjá þessum flokki sem hefur ráðist með hatrömmum hætti á alla þá sem hafa vogað sér að gagnrýna stjórnleysi í þessum málum. Svo erum við með Vinnumálastofnun sem sölsar undir sig eignir í sveitarfélaginu með því að leigja út íbúðarhúsnæði og gistiheimili fyrir umbjóðendur sína. Það sem verra er, stofnunin gerir þetta í skjóli róttæks ráðherra Vinstri grænna sem segir aðspurður að hér sé einfaldlega svo mikið af lausu húsnæði. Ég efast um að íbúar Reykjanesbæjar taki undir þá fullyrðingu, enda leiguverð utan höfuðborgarsvæðisins orðið hæst í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Síðasta sumar urðu svo margir fyrir áfalli þegar bréf barst frá fyrirtæki sem sér um almenningssamgöngur hér í bæ þar sem lýst var yfir neyðarástandi t.d vegna þess að foreldrar þorðu ekki lengur að senda börnin sín í strætó.

Skólar hér í bæ finna fyrir þessu mikla álagi og allir innviðir í sveitarfélaginu eru einfaldlega að sligast undan álaginu sem því fylgir að vera með allt of marga hælisleitendur og flóttamenn. Allt er gott í hófi en það er ekkert hóflegt við þessa stöðu.

Vinstri meirihlutinn hér í bæ hefur ítrekað reynt að firra sig ábyrgð og bent á ríkið sem sökudólg. Það er ansi ómerkilegt að þeir sem stýra sveitarfélaginu og eiga að annast hagsmunagæslu þess gagnvart ríkinu telji ábyrgð sína enga vera.

Sterkur meirihluti hefði aldrei leyft þessu að gerast. Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hafa bent á þetta vandamál ótal sinnum en meirihlutinn hefur sofið á verðinum og bæjarbúar súpa nú seyðið af því.

Við höfum séð sambærileg sveitarfélög stíga fram af hörku þegar þau sáu í hvað stefndi. Stofnanir ríkisins hættu að angra þau sveitarfélög, en af einhverjum ástæðum er eins og Reykjanesbær geti tekið endalaust við. Útlendingamálin á Íslandi eru orðin algjörlega stjórnlaus. Á síðasta ári varð beinn kostnaður við málaflokkinn rúmlega 20 milljarðar, sem er tæplega 5.000% útgjaldaaukning á 11 árum. Við sem höfum barist fyrir innviðauppbyggingu á svæðinu um árabil vitum hvað hægt er að gera fyrir slíkar upphæðir. Auðvitað eigum við að taka á móti flóttamönnum eins og aðrar þjóðir en þessi mál mega ekki verða stjórnlaus. Við ættum að læra að reynslu nágrannaþjóða okkar í þeim efnum.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra verður með opinn fund um málaflokkinn ásamt Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra fimmtudaginn 22. febrúar, klukkan 18 í Grófinni 8. Um opinn fund fyrir alla bæjarbúa er að ræða og hvet ég alla til að mæta.

Guðbergur Reynisson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.